Hjallaland 30

108 Reykjavík

Ásett verð: 164.900.000 kr.

Hjallaland 30
Tegund
Raðhús
Stærð
204,9 m²
Herbergi
8
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1968
Fermetraverð
804.783 kr.

Lýsing

Gott endaraðhús fyrir neðan götu í miðjum Fossvogi með fjórum svefnherbergjum. Húsið er 185,4 fm og bílskúr 19,5 fm, samtals 204,9 fm. Húsið er mjög vel staðsett, örstutt í leikskóla og skóla, með stórum suður garði. Garður er í góðri rækt, timburverönd að hluta og lítill garðskúr er úti á lóð.

Pallur I

Forstofa er með flísum á gólfi og skápum.

Borðstofa er rúmgóð með flísum á gólfi.

Eldhús er einnig rúmgott með innbyggðum ísskáp.

Búr er innaf eldhúsi, þetta rými er notað sem vinnuaðstaða í dag.

Pallur II og efsti pallur.

Stofa með parketi og útgengt út á svalir til suðurs, fallegt útsýni.

Borðstofa með parketi.

Pallur III Gengið út í garð frá þessum palli.

Rúmgott herbergi sem er lokað með rennihurð, flísar á gólfi og rennihurð út í garð. Þetta herbergi var áður tvö herbergi.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, sturta og baðkar.

Hjónaherbergi með parketi og innangengum fataskáp.

Pallur IV neðsti pallur.

Herbergi með flísum á gólfi og skápum.

Herbergi með parketi og skápum.

Forstofa með flísum og miklum skápum, það er inngangur inn á þennan pall að utan.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Kristján Þórir Hauksson lögg. fasteignasali í síma 696-1122 eða á netfanginu kristjan@fastlind.is

Skipt var um járn og þakpappa árið 2021, ekki var talin þörf á að skipta út borðum. Seljendur hafa aldrei orðið varir við leka inn í húsið á þeim 13 árum sem þau hafa búið í húsinu.

Endurnýja þarf timburhandrið við aðalinngang. Laga þarf svalahurð. Fataskápur í öðru herberginu á neðsta palli er lélegur.

Rakaskemmdir hafa komið fram utanhúss í vegg og glugga undir svölum. Ekki hefur orðið vart við leka innandyra og engar rakaskemmdir sjáanlegar.

Framkvæmdir eru yfirstandandi á bílskúrslengju haustið 2026 þ.e. múrviðgerð og bílskúrshurðir voru endurnýjuðar í september. Seljandi ber kostnað af þessum framkvæmdum.

Árið 2013 var rafmagnstafla yfirfarin ásamt því að skipt var um innstungur og slökkvara.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lind fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati, lögaðili greiðir 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.