Kolbeinsgata 20

690 Vopnafjörður

Ásett verð: 26.900.000 kr.

Kolbeinsgata 20
Tegund
Einbýlishús
Stærð
180,499998474121 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1940
Fermetraverð
149.030 kr.

Lýsing

Einbýlishús á tveimur hæðum með fjórum svefnherbergjum og nokkuð stórum frístandandi bílskúr (byggður 2013). Fallegur og vel hirtur garður og mjög gott útsýni er frá húsinu.

Eldhús og baðherbergi voru endurnýjuð ca. 2005 og vatnslagnir stuttu áður.

Inngangur í húsið er á neðri hæð. Þar eru stofa, hol og eldhús í nokkuð opnu rými. Parket er í stofu og holi en flísar í eldhúsi. Í eldhúsi er ljómandi fín innrétting og góður borðkrókur. Flísalagt baðherbergi með sturtu er á neðri hæð. Einnig eru þvottahús og geymsla/búr á hæðinni.

Á efri hæð er parketlagður gangur og fjögur svefnherbergi, öll með parket á gólfi.

Bílskúr (46,1 m²) er nokkuð hefðbundinn en kannski örlítið hrár.