Bragagata 34B

101 Reykjavík

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Bragagata 34B
Tegund
Einbýlishús
Stærð
48,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1922
Fermetraverð
1.338.144 kr.

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallegt og mikið endurnýjað 48,5 fermetra einbýlishús á einni hæð við Bragagötu í Reykjavík, en eignin er á baklóð og stendur því við Haðarstíg og er með aðkomu þaðan. Lítil lóð er við húsið með lítilli helllulagðri verönd við inngang. Mögulegt kynni að vera að byggja eina hæð ofan á eignina, en slíkt er vitanlega háð samþykki skipulagsyfirvalda.

Eignin hefur verið mikið endurnýjuð að innan nýlega:

m.a. lagðar gólfhitalagnir, eldhúsinnrétting og tæki endurnýjuð, baðherbergi algjörlega endurnýjað og gólfefni.

Lýsing eignar:

Forstofa, lakkað gólf og fatahengi.

Eldhús, opið við stofu, parketlagt og með fallegum hvítum innréttingum með viðarborðplötum, eyju með helluborði og tengi fyrir þvottavél.

Stofa, parketlögð.

Gangur, parketlagður.

Baðherbergi, með glugga, flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri.

Sjónvarpshol, parketlagt og mögulegt að útbúa þar lítið svefnherbergi.

Svefnherbergi, parketlagt og rúmgott.

Húsið að utan lítur ágætlega út, steinsteypt og málað. Þakjárn lítur ágætlega út, sem og þakrennur og niðurföll.

Lóðin, er 88,5 fermetrar að stærð, með lítilli hellulagðri verönd fyrir framan húsið og er afgirt að hluta.

Staðsetning eignarinnar er mjög góð á rólegum og eftirsóttum stað í miðborginni.

Allar nánari upplýsingar og tímapantanir á skoðun veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is