Stekkholt 61

210 Garðabær

Ásett verð: 174.900.000 kr.

Stekkholt 61
Tegund
Raðhús
Stærð
228,699999237061 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Byggingarár
2026
Fermetraverð
764.757 kr.

Lýsing

Betri Stofan og Guðbjörg Guðmundsdóttir löggiltur fasteignasali kynna: Einstaklega vel skipulagt endaraðhús með innbyggðum bílskúr, við Stekkholt 61, í Hnoðraholti, Garðabæ. Eignin er skráð 228,3 fm og skiptist í fjögur svefnherbergi, sjónvarpshol, 3 baðherbergi, stofu, borðstofu, eldhús, þvottahús, anddyri og bílskúr. Frá stofu er gengið út á góðar suðaustur svalir.

Eignin skilast tilbúin til innréttinga að innan skv. skilalýsingu. Að utan skilast húsin frágengin, einangruð að utan og klædd álklæðningu, Velfac ál/tré gluggar.

Bílastæði hellulagt með snjóbræðslu undir. Lóð skilast að öðru leiti grófjöfnuð samkvæmt skilalýsingu.

Nálgist skilalýsingu og nánari upplýsingar hér:

Guðbjörg Guðmundsdóttir í síma 8995533 gudbjorg@betristofan.is

Nánari lýsing:

Stekkholt 61 er endaraðhús í nýrri fjögurra húsa raðhúsalengju sem nú er í byggingu í Hnoðraholti Garðabæ. Frá götu er aðkoma að efri hæð hússins, þar er innbyggður bílskúr , stórt anddyri , stofa , eldhús , borðstofa og baðherbergi . Úr stofu er gengið út á góðar svalir til suðausturs.

Á neðri hæð er hjónasvíta með sér baðherbergi og fataherbergi, þrjú rúmgóð barnaherberg i, öll yfir 10fm., sjónvarpshol , rúmgott baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottaaðstöðu og skolvaski. Af gangi neðri hæðar er útgengt í garð.

Um er ræða glæsileg og vel skipulögð raðhús í nýju og skemmtilegu hverfi í Garðabæ. Hnoðraholt er vel staðsett nýtt hverfi þaðan sem stutt er í alla helstu þjónustu og gott aðgengi er að útivistasvæðum Garðabæjar svo sem Heiðmörk, Vífilstaðavatni og golfvelli GKG.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald, 0,3% af væntanlegu brunabótamati.

Nánari upplýsingar Veita:

Guðbjörg Guðmundsdóttir í síma 899 5533 netfang: gudbjorg@betristofan.is

Þórhallur Biering Guðjónsson í síma 896 8232 netfang: thorhallur@betristofan.is

Jason Kristinn Ólafsson í síma 775 1515 netfang: jason@betristofan.is