Dýjagata 16

210 Garðabær

Ásett verð: 349.000.000 kr.

Dýjagata 16
Tegund
Einbýlishús
Stærð
396,7 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
4
Byggingarár
2015
Fermetraverð
879.758 kr.

Lýsing

Móeiður og Miklaborg kynna : Einstakt tækifæri til að eignast einbýlishús og stóra lóð í algerum sérflokki . Með óskertu útsýni og sólina allan daginn, Dýjagata 16 er eign sem býður upp á endalausa möguleika. Húsið sjálft er 396,7 fm og lóðin 1.594 fm með byggingarrétt fyrir 880 fm hús.

***Seljandi er opinn fyrir uppítöku á öðrum eignum***

Bókaðu skoðun! Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899 8278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897 0634 eða throstur@miklaborg.is

Nánari lýsing

Við Dýjagötu í Urriðaholti er komið í sölu glæsilegt 396,7 fm einbýlishús á 1.594 fm lóð , hannað af Kára Eiríkssyni arkitekt. Eignin stendur í fremstu götu við Urriðavatn og nýtur einstaks útsýnis yfir vatnið og náttúruna í kring — staðsetning sem á sér fáa líka á höfuðborgarsvæðinu.

Húsið er mjög vandað með; hnotuinnréttingar, náttúrustein frá Rein, gólfhita um alla eign og mikla lofthæð með stórum gluggum . Björt stofa með stórum innbyggðum arni og rúmgóðar svalir í suður og suð-austur. Borðstofa með útgengt á svalir í suð-vestur. Á efri hæð eru síðan þaksvalir með stórbrotnu útsýni. Þrefaldur 60 fm bílskúr og sjálfstæð aukaíbúð — auk þess sem byggingarréttur er fyrir allt að 880 fm .

Staðsetningin er í senn kyrrlát og miðsvæðis: neðst í götu við óbyggt svæði og Urriðavatn. Urriðaholtsskóli, sem starfar bæði á leik- og grunnskólastigi, er í göngufæri, ásamt verslunum í næsta nágrenni. Draumastaður fyrir golfáhugafólk — þrír golfklúbbar, Oddur, GSE og GKG, allir í innan við 10 mínútna fjarlægð.

Náttúran í Urriðaholti umlykur hverfið á þrenna vegu; Vífilsstaðahraun að norðanverðu, Heiðmörk til austurs og Hádegisholt og Urriðavatn í suður og suðvestur.

Helstu kostir:

396,7 fm einbýli

1.594 fm lóð

60 fm þrefaldur bílskúr

Þaksvalir og nokkrar svalir

Aukaíbúð

Byggingarréttur fyrir allt að 880 fm

Hnotuinnréttingar

Steinn frá Rein í eldhúsi

Gólfhiti allsstaðar

Mikil lofthæð og mjög stórir gluggar

Arinn í stofu

Endalausir möguleikar

***Seljandi er opinn fyrir uppítöku á öðrum eignum***

Sjón er sögu ríkari!

Bókaðu skoðun! Nánari upplýsingar veitir Móeiður Svala lögg. fasteignasali í síma 899 8278 eða moa@miklaborg.is og Þröstur Þórhallsson lögg. fasteignasali í síma 897 0634 eða throstur@miklaborg.is