Engjavellir 1
221 Hafnarfjörður
Ásett verð: 108.000.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 158 m²
- Herbergi
- 5
- Svefnherbergi
- 4
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2006
- Fermetraverð
- 683.544 kr.
Lýsing
Vernharð Þorleifsson lgf. og Magga Gísladóttir lgf. kynna til sölu glæsilega og rúmgóða 5–6 herbergja íbúð í litlu fjölbýlishúsi við Engjavelli í Hafnarfirði.
Eignin er alls 158 fm og eru allir fermetrar innan íbúðarinnar. Um er að ræða sérlega góða fjölskyldueign með sérinngangi, fjórum rúmgóðum svefnherbergjum , tveimur salernum, tvennum svölum og sérmerktu bílastæði. Möguleiki er á að útbúa fimmta svefnherbergið án þess að það skerði stofurýmið verulega.
Íbúðin er björt og vel skipulögð.
Staðsetningin er mjög góð. Grunnskóli og leikskóli eru í um 50 metra fjarlægð og íþróttamiðstöð, sundlaug, verslanir og helstu samgönguæðar eru allt innan um 600 metra radíus.
Nánari lýsing:
Forstofa : Sérinngangur. Flísar á gólfi og góður skápur.
Gestasalerni : Inn af forstofu, flísar á gólfi og opnanlegur gluggi.
Stofa og eldhús : Bjart og rúmgott alrými með parketi á gólfi. Útgengt er á rúmgóðar 13 fm svalir sem snúa til suðurs. Stofan er rúmgóð og mögulegt er að útbúa þar fimmta svefnherbergið og halda eftir góðu stofurými.
Eldhús : Hvít innrétting, svartur steinn á borðplötum og eldunareyju, helluborð, ofn í vinnuhæð og góð vinnuaðstaða. Eldunareyjan býður jafnframt upp á gott setupláss.
Hjónaherbergi : Rúmgott með góðu skápaplássi, parketi á gólfi og útgengi á aðrar svalir.
Barnaherbergi : Þrjú rúmgóð herbergi með skápum og parketi á gólfi.
Baðherbergi : Flísalagt á gólfum og veggjum, hvít innrétting, baðkar og sturta.
Þvottaherbergi : Flísar á gólfi, innrétting og vaskur.
Geymsla : Innan íbúðar, með flísum á gólfi.
Viðar parket úr eik á stofu og herbergjum.
Gott skápapláss og geymslupláss innan íbúðar.
Sameiginleg hjóla- og dekkjageymsla er í húsinu.
Helstu kostir eignarinnar: Sérinngangur.
Tvennar svalir.
Tvö salerni.
Fjögur rúmgóð svefnherbergi og möguleiki á því fimmta.
Lítið fjölbýlishús.
Sérmerkt bílastæði.
Allir fermetrar innan íbúðar.
Mjög góð staðsetning fyrir fjölskyldufólk.
Frábær og rúmgóð fjölskyldueign á góðum stað við Engjavelli í Hafnarfirði.
Allar frekari upplýsingar veita Vernharð í síma 699 7372 / venni@remax.is og Magga í síma 698 7494 / magga@remax.is