Sóltún 13

105 Reykjavík

Ásett verð: 88.900.000 kr.

Sóltún 13
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
108,5 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2000
Fermetraverð
819.355 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og bjarta 108,5 fm - 3ja herbergja endaíbúð á annari hæð á þessum vinsæla stað í eftirsóttu lyftuhúsi við Sóltún 13 í Reykjavík.

Eignin skiptist í stórt alrými með stofu, borðstofu, sólríkar suður svalir, eldhús, tvö svefnherbergi, baðherbergi, sér þvottahús og geymsla innan íbúðar. Bílastæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni. Eignin getur verið laus fljótlega.

Nánari lýsing :

Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og fataskáp

Eldhúsið er inn af stofunni, þar er innrétting með góðu skápaplássi. Eldhúsinnréttingin stúkar eldhúsið af frá stofunni. Parket á gólfum.

Stofa og hol mynda saman sérstaklega rúmgott og alrými. Parket á gólfum. Úr stofu er gengt út á suðursvalir.

Baðherbergi er flísalagt í hólf & gólf. Vönduð innrétting og góður sturtuklefi.

Svefnherbergin eru tvö. Bæði parketlögð með góðum fataskápum.

Þvottahús er rúmgott og góð geymsla/búr inn af þvottahúsi.

.

Vandaðar eikarinnréttingar og skápar frá Brúnás.

Íbúðinni fylgir 4 fm sérgeymsla í kjallara og sérmerkt bílastæði í bílakjallara.

Falleg og vel staðsett íbúð á eftirsóttum stað miðsvæðis í borginni

Stutt í alla helstu verslun og þjónustu - göngufæri við miðborgina

Húsið var hannað með sérstaka áherslu á góða hljóðvist. Vönduð einangrun er á milli hæða og massífar innihurðir stuðla að auknum hljóðþægindum og næði fyrir íbúa.

Nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson Löggiltur fasteignasali, í síma 895-5198, tölvupóstur bjossi@trausti.is.