Þrastahólar 2

805 Selfoss

Ásett verð: 129.900.000 kr.

Þrastahólar 2
Tegund
Sumarhús
Stærð
185,399998474121 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
3
Byggingarár
2021
Fermetraverð
700.647 kr.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Þrastahólar 2 , 805 Selfoss, Grímsnes- og Grafningshreppi. Glæsilegt og nýlegt heilsárshús sem stendur á 10.209 fm eignarlóð. Einstakt útsýni og frábær aðstaða – Sjón er sögu ríkari.

Birt stærð er 185,4 fm ásamt 15 fm útigeymslu, sem gerir heildarstærð eignarinnar rúmlega 200 fm. Húsið, bílskúrinn, sauna húsið og útigeymslan standa á staðsteyptum plötum. Eignin er vel skipulögð, með góðu útiplássi, og glæsilegu útsýni sem nær m.a. til Búrfells og Ingólfsfjalls. Hiti er í gólfi og er húsið er tengt hitaveitu kerfi veitna, sér einangraður skúr fyrir inntök og gjöful.

Bókið skoðun í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is

Nánari lýsing :

Tveir aðal inngangar eru að húsinu með góðum skápum, stór hellulögð bílaplön, næg bílastæði.

Stofan er inn af andyrri í opnu rými, arinn, góð lofthæð með útgengi út á verönd.

Eldhúsið er samliggjandi stofunni bjart, og opið rými með fallegu útsýni.

Hjónaherbergi I er rúmgott með með innbyggðum fatahillum og slá. Sérgangur með hurð skilur það frá öðrum rýmum og veitir aðgang að sérbaðherbergi og útgengi á pottasvæði.

Svefnherbergi II er rúmgott með fataskáp, innaf því er baðherbergi.

Svefnherbergi III er með innbyggðum fatahillum og slá.

Baðherbergin eru tvö og eru bæði er flísalögð í hólf og gólf með vandaðri innréttingu. Gluggi á baði er með opnanlegu fagi og einnig er "Walk-in" sturta.

Þvottahús er með þvottavél, þurrkara, skolvask ásamt góðu skápaplássi.

Gólfefni er parket og flísar.

Bílskúr/gestahús er með lökkuðu floti á gólfi, salerni og sérsmíðaðri koju. Lagnir eru til staðar fyrir bílskúrsvask.

Útisvæði : Heitur og kaldur pottur, útisturta. Sauna hús sem er tvískipt, slökunarrými með rúmi og vel byggð. Sauna með klæðningar og ofn frá Sauna.is

Útigeymsla er á steyptri plötu á milli hússins og bílskúrs. Er 15 fm og er á teikningu en er ekki inn í fermetratölu.

Glæsileg eign með um 400 fm af hellulögn og frábæru útisvæði. Svæðið er lokað með rafmagnshliði (símahlið).Búið er að leggja ljósleiðara að húsi en á eftir að tengja inni.

Stutt í Grímsborgir, Búrfell, Selfoss og aðrar náttúruperlur eins og Kerið og Gullfoss og Geysi. Um 50 mín akstur frá Reykjavík.

Nánari upplýsingar veitir

Alfreð Valencia löggiltur fasteignasali í síma: 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook