Skúlagata 32-34

101 Reykjavík

Ásett verð: 69.900.000 kr.

Skúlagata 32-34
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
81 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1959
Fermetraverð
862.963 kr.

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir fallega 3ja herbergja íbúð í góðu lyftufjölbýli við Skúlagötu 32-24, 101 Reykjavík. Íbúðin er á 2.hæð og er með útsýni til sjávar. Aukin lofthæð í allri íbúðinni. Sameiginleg bílstæði sem er lokað með símahliði.

Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 81 fm og þar af geymsla 7,1 fm.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í hjarta miðborgarinnar þar sem stutt er í alla þjónustu, verslanir, veitingastaði og mannlíf.

Nánari um eignina:

Forstofa : er í opnu rými með stofu/borðstofu og eldhúsi. Flísar á gólfi

Stofa/borðstofa : björt með útsýni til sjávar og að Esjunni. Parket á gólfi

Eldhús : Nýleg eldhúsinnrétting með bakaraofn, innbyggð uppþvottavé og stæði fyrir ísskáp. Flísar á gólfi

Hjónaherbergi : gengið inn frá stofu. Parket á gólfi. Utengt út á flottar svalir með sjávarútsýni.

Barnaherbergi : gengið inn frá stofu. Parket á gólfi.

Baðherbergi : með fallegum flísum, stórt baðkar, handklæðaofni, upphengdri innréttingu og upphengdu salerni

Geymsla : er 7,1 fm. og staðsett á jarðhæð

Þvottaherbergi : inn af eldhúsi, með innréttingu. Flísar á gólfi

Bílastæði : eru á framlóð hússins og einnig eru bílastæði fyrir húsið á malbikuðu plani á baklóð hússins þaðan sem einnig er innangengt í stigahús/lyftuhús. Slá er fyrir innkeyrslu á baklóð þannig að þau bílastæði eru eingöngu nýtt af íbúum hússins.

Sameign er mjög snyrtileg með hjóla- og vagnageymslu.

Húsið að utan: allt klætt með áli með innbrenndum hvítum lit. Norður og suðurhliðar efstu hæðar eru klæddar með harðviði

Nánari upplýsingar veita:

Auðun Ólafsson löggiltur fasteignasali, í síma 894-1976, tölvupóstur audun@trausti.is

Kristján Baldursson löggiltur fasteignasali, í síma 867-3040, tölvupóstur kristjan@trausti.is