Heiðarvegur 9

900 Vestmannaeyjar

Ásett verð: 66.000.000 kr.

Heiðarvegur 9
Tegund
Hæð
Stærð
128,1 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
1976
Fermetraverð
515.222 kr.

Lýsing

Halldóra Kristín Ágústsdóttir löggiltur fasteignasali sími 8611105- dora@eyjaeignir.is og Eyjaeignir fasteignasala kynna í einkasölu: Heiðarveg 9b sem er björt, falleg og vel skipulögð efri hæð í tvíbýli á besta stað í Vestmannaeyjum. Húsið er byggt úr steini árið 1976 og er eignin skráð 128,1 m2. Eignin var mikið endurnýjuð árið 2009, 3 svefnherbergi, þvottahús og góðar suðursvalir, niðurtekin loft með innfelldri lýsingu. Þak nýlega yfirfarið, nýjar flasningar. Húsið er klætt og einangrað að utan til suðurs, austurs og norðurs. Frábær staðsetning miðsvæðis í eyjum í göngufæri frá allri helstu verslun og þjónustu. Óskað er eftir tilboðum í eignina.

BÓKIÐ SKOÐUN á netfangið dora@eyjaeignir.is eða í síma 8611105

Nánari lýsing:

Forstofa: Teppi á gólfi, breiður og rúmgóður stigi upp í íbúðina

Stofa : Parket á gólfi, útgengt á svalir

Eldhús : Parket á gólfi, snyrtileg viðar innrétting, flísar á vegg á milli skápa

Baðherbergi : Flísar í hólf og gólf, hornbaðkar, upphengt wc, baðinnrétting, opnanlegur gluggi.

Herbergi 1: parketi á gólfi, skápur

Herbergi 2: parket á gólfi

Herbergi 3: Parket á gólf

Þvottahús : Flísar á gólfi, innrétting, vaskur, lúga á geymsluloft, útgengt á svalir

Geymsla : sameiginleg geymsla með neðri hæð, hitagrind

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati. (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Eyjaeignir fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.