Hrísalundur 6B

600 Akureyri

Ásett verð: 48.800.000 kr.

Hrísalundur 6B
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
85 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1973
Fermetraverð
574.118 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Hrísalundur 6B

Um er að ræða þriggja herbergja íbúð á 3. hæð í fjölbýlishúsi, mjög gott útsýni frá íbúð.

Íbúðin er björt og vel skipulögð, eignin er skráð samtals 85 fm. að stærð, þar af er sér geymsla í sameign á 1. hæð 3,7 fm. að stærð.

Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, tvö svefnherbergi baðherbergi og lítil geymsla innan íbúðar. Eigninni fylgir sér geymsla í sameign og hlutdeild í vagna- og hjólageymslu.

Flotað málað gólf á allri íbúðinni fyrir utan baðherbergi. Nýlega hefur verið opnað milli eldhús og stofu.

Forstofa , flotað og málað gólf.

Eldhús og stofa í opnu rými, góð eldri innrétting sem er filmuð að hluta, flísar milli efri og neðri skápa. Stæði fyrir uppþvottavél í innréttingu. Útgengi út á vestursvalir út stofu með góðu útsýni.

Svefnherbergin eru tvö, góðir fataskápar í báðum herbergjum.

Baðherbergi flísar á gólfi og veggir að hluta, baðkar og sturtuklefi. Innrétting við vask ásamt speglaskápum. Tengi fyrir þvottavél á baði.

Geymsla innan íbúðar málað gólf og hillur.

Eins og áður segir fylgir sér geymsla með hillum á 1. hæð sem og hlutdeild í vagna- og hjólageymslu.

Annað:

- Vinsæl staðsetning

- Stutt í leik- og grunnskóla

- Stutt í verslun

- Rafmagnstenglar endurnýjaðir

- Ný útidyrahurð

- Mjög gott útsýni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. Undantekningar eru þó við fyrstu kaup einstaklinga 0.4%, nánar um skilyrði helmingsafsláttar í 5 gr. laga nr 138/2013, um stimpilgjöld.

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 / rafræn þinglýsing kr. 1.500 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Frekari upplýsingar:

olafur@byggd.is

greta@byggd.is

halla@byggd.is

bjorn@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.

S:464 9955