Norðurgata 4

580 Siglufjörður

Norðurgata 4
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
64 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
1947

Lýsing

Betri Stofan Fasteignasala kynnir eignina Norðurgata 4, 580 Siglufjörður, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 213-0775 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin Norðurgata 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 213-0775, birt stærð 64.0 fm.

Nánari upplýsingar veitir Arndís Erla Jónsdóttir , í síma 690-7282, tölvupóstur arndis@betristofan.is.

Um er að ræða verslunarhúsnæði í miðbæ Siglufjarðar með aðgang frá götu. Rýminu er skipt upp með léttum veggjum í forstofu með afgreiðsluborði, salerni og sturtuaðstöðu, tvö herbergi, þvottaaðstöðu og opnu rými. Flísar eru fljótandi á gólfi eignarinnar. Stór útstillingargluggi er við götu.

Eignin í heild hefur verið endurnýjuð að stórum hluta að utan sem og innan.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% - 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðflutningsskjölum, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. þjónustusamning.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignamiðlun fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Betri Stofan - Borgartúni 30 - 105 Reykjavík - Arndís Erla Jónsdóttir löggiltur fasteignasali í Fjallabyggð