Skólagerði 69

200 Kópavogur

Ásett verð: 169.500.000 kr.

Skólagerði 69
Tegund
Einbýlishús
Stærð
214,2 m²
Herbergi
7
Svefnherbergi
6
Baðherbergi
2
Byggingarár
1947
Fermetraverð
791.317 kr.

Lýsing

Fallegt og mjög mikið endurnýjað 7. herbergja 214,2 m² einbýlishús á Kársnesinu, 200, Kópavogur. Eignin skiptist í anddyri, eldhús, stofu og borðstofu, 3 svefnherbergi á neðri hæð, fallegt endurnýjað baðherbergi með tengingu fyrir þvottavél og þurrkara. Efri hæð: Alrými og herbergi eru á efri hæð ásamt gestasalerni og þakgeymslu. Útleigu íbúð í austurenda, með sérinngangi, alrými, eldhúskrók og baðherbergi. Stór sérstæður bílskúr með hellulögðu gólfi. Timburverönd er á suður og vesturhlið hússins. Eignin er skráð 214,2 m² hjá HMS, þar af er bílskúr 45 m²

* Mikið endurnýjað, sjá neðar í lýsingu.

* Umþb. 25m². útleiguíbúð

* Stór bílskúr

* Skemmtilega hönnuð íbúð.

* Stutt í skóla og leikskóla.

* Flottur garður

Allar nánari upplýsingar veitir:

Edwin Árnason, löggiltur fasteignasali, í síma: 893-2121 eða edwin@palssonfasteignasala.is

Nánari lýsing:

Neðri hæð:

Samstætt harðparparket, ljós eik, er á gólfum neðri hæðar, fyrir utan votrými.

Forstofa: gengið er inn í forstofu með fatahengi, eldhús er inn af forstofu.

Eldhús: eldhúsið var endurnýjað 2024, innréttingar og tæki. Hvítar fallegar innréttingar og dökk borðplata, borðkrókur og veggháfur.

Stofa: stofa og borðstofa eru í sama rými, stofan er rúmgóð og björt og útgengi er út á fallegann afgirtann timburpall til suð/vesturs.

Baðherbergi: rúmgott baðherbergi flísalagt í hólf og gólf, endurnýjað 2018, fallegar innréttingar, walk in sturta, upphengt salerni, gólfhiti og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Herbergi: þrjú rúmgóð herbergi, eitt með skápum.

Efri hæð.

Alrými með gestasalerni og lítilli eldhúsinnréttingu, harðparket á gólfum, gott herbergi og geymslurými innaf herberginu. Einfalt að breyta alrými í tvo hluta þannig að efri hæð sé með tvö svefnherbergi.

Herbergi: rúmgott og bjart herbergi með geymslu innaf herberginu.

Alrými: rúmgott alrými með gestasalerni og lítilli eldhúsinnréttingu

Gestasalerni: salerni með vaski og upphengdu salerni.

Geymsla: gengið er inn á geymsluloft innaf herberginu.

Útleiguíbúðin:

Alrými: gott alrými með lítilli eldhúsinnréttingu, plastparket á gólfi, eikarlitur.

Baðherbergi: lítið baðherbergi með vaski, sturtu og salerni, dúkur á gólfi.

Bílskúr: sérstæður 45 m² bílskúr með hellulögðu gólfi.

Bílaplan er með möl, en búið að jarðvegsskipta þannig að einfalt er að helluleggja. Garðurinn er stór og gróinn, vel hirtur og fallegur. Falleg timburverönd er á suðvestur enda hússins og suðurhlið.

Um er að ræða flott einbýlishús á mjög barnvænum stað í Kópavogi, þar sem stutt er í skóla, leikskóla og gönguleiðir um Kársnesið.

Húsið er hefur verið mikið endurnýjað undanfarin ár. 2024 er skipt um parket, hurðir á neðri hæð og innréttingar og tæki endurnýjað í eldhúsi. 2022 er smíðaður timbur pallur og skipt um hurðina út úr stofu inná pallinn. 2018 er skipt um alla ofna og ofnalagnir á neðri hæðinni. 2017 er skipt um járn og pappa á þaki og endurnýjað timbur þar sem þurfti, á sama tíma voru settar nýjar þakrennur og þakgluggar settir í, og 2025 var sett hitalögn í þakrennurnar. 2014 er bílaplan jarðvegsskipt og þá var einnig frárennslislögnum, kaldavatnslögnum og hitaveitulögnum skipt út og settar nýjar.

Nánari upplýsingar veitir:

Edwin Árnason, Lgf. í síma nr 893-2121 eða edwin@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.