Gvendargeisli 24

113 Reykjavík

Ásett verð: 81.900.000 kr.

Gvendargeisli 24
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
109,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2003
Fermetraverð
749.314 kr.

Lýsing

Hannes Steindórsson kynnir:

Vel skipulögð þriggja til fjögurra herbergja íbúð með sérinngangi á jarðhæð með afgirtri timburverönd í suðurátt og stæði í bílageymslu við Gvendargeisla 24.

Eignin er skráð 109,3 m2, en þar af íbúð 100,1 m2 og geymsla 9,2 m2. Lokaðar svalir um 11,2 m2 sem ekki eru í fermetratölu eignarinnar.

Gott skipulag og fallegar sérsmíðaðar innréttingar. Fallegir viðalistar með hljóðeinangrun og sérsmíðuð lýsing.

Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.

Stofa/borðstofa er í opnu rými með flísum á gólfi, veggur í stofu er klæddur með fallegum marmaraflísum.

Úr stofu er gengið út á lokaðar svalir/sólstofu með gólfhita og flísum á gólfi sem hefur verið nýtt sem herbergi, þaðan er gengið út á skjólgóða timburverönd með heitum potti.

Eldhús er með fallegri sérsmíðaðri innréttingu og flísum á gólfi.

Í innréttingu eru tveir ofnar, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, vaskur og helluborð. Steinn á borðum backsplash úr Marmara svörtum flísum á milli efri skápa og borðplötu.

Svefnherbergi nr. 1 (Hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og stórum fataskáp.

Svefnherbergi nr. 2 er með parketi á gólfi og fataksáp.

Baðherbergi með glæsilegum marmaraflísum á veggjum og parket flísum á gólfi. Falleg sérsmíðuð innrétting með vask úr steini, 'walk in' sturta, handklæðaofn og vegghengt salerni.

Þvottahús er innan íbúðar og með flísum á gólfi.

Geymsla er í sameign. Er skráð 9,2 m2.

Eigninn fylgir sérmerkt stæði í bílageymslu ásamt hlutdeild að sameignlegri hjóla- og vagnageymslu.

Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s.699-5008 hannes@fastlind.is