Baugakór 24
203 Kópavogur
Ásett verð: 109.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 132,2 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2006
- Fermetraverð
- 831.316 kr.
Lýsing
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Björt, falleg og vel skipulögð 132,2 m2, 4ra herbergja íbúð, í fjórbýlishúsi, með sérinngangi á jarðhæð við Baugakór 24 í Kópavogi. Eignin skiptist í forstofu, hol, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Sameiginleg hjólageymsla er á jarðhæð. Hellulagðar verandir með skjólgirðingu á suðvestur- og norðausturhlið. Búið er að draga rafmagn fyrir rafhleðslustöð á bílastæði fyrir framan húsið.
Frábær staðsetning á eftirsóttum stað í Kórahverfi í Kópavogi. Stutt í leik- og grunnskóla, sundlaug, íþróttasvæði HK og falleg útivistarsvæði.
Endurbætur samkvæmt upplýsingum frá seljanda: 2026 var þak endurnýjað. 2024 var ný sturta sett upp á baðherbergi með innbyggðum blöndunartækjum. Verönd og skjólgirðing stækkuð norðan megin við húsið. 2023 var skipt um glugga á baðherbergi.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og með fataskápum.
Hol er með parketi á gólfi.
Eldhús er með borðkrók og flísum á gólfi, er opið bæði við hol og stofu að hluta. Fallegar eikarinnréttingar með flísum á milli skápa, steinn á borðum. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu.
Stofa er rúmgóð og björt með parketi á gólfi og útgengi á afgirta timburverönd til suðvesturs.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum. Úr hjónaherbergi er útgengt á afgirta timburverönd til norðausturs.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, með innréttingu með handlaug, "walk-in" sturtu og vegghengdu salerni. Opnanlegur gluggi er í á baðherberginu.
Þvottaherbergi er með flísum á gólfi, skolvaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara og opnanlegum glugga.
Geymsla er innan íbúðar með hillum og flísum á gólfi.
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign á jarðhæð.
Verð kr. 109.000.000 -