Vitastígur - Aukaíbúð

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 119.900.000 kr.

Vitastígur - Aukaíbúð
Tegund
Einbýlishús
Stærð
138,7 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1945
Fermetraverð
864.456 kr.

Lýsing

Bjart og sjarmerandi 138,7 fm einbýlishús við Vitastíg 3. Eignin hefur hlotið góða endurnýjun á undanförnum árum. Húsið stendur á einstaklega góðum stað í hjarta Hafnarfjarðar þar sem stutt er í almenningssamgöngur og alla helstu þjónustu.

Húsið er selt með fyrirvara

Vakin er athygli á því að eignin er skráð á tvö fastanúmer . Aðalhæð eignar er með fnr: 208-0611 og rið hæð eignar er með fnr: 208-0612.

**Þak, gluggar og klæðning endurnýjuð 2024

**Þrjú svefnherbergi og hægt að bæta einu við

**Rishæð nýlega endurnýjuð

**Frábær staðsetning í miðbæ Hafnarfjarðar

Birt stærð eignar á aðalhæð samkvæmt Þjóðskrá Íslands er 76,7 fm og birt stærð á eign í risi er 62 fm.

Nánari upplýsingar veita:

Ómar Hjaltason astmf. S:7789090 eða omar@palssonfasteignasala.is

Páll Pálsson lgf. S

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Eignin skiptist þannig að á aðalhæð er forstofa, gangur, eldhús, stofa, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Á efri hæð hússins er eldhús sem er opið til stofu og svefnherbergi. Geymsla og þvottahús er staðsett í kjallara.

Nánari lýsing á aðalhæð:

Gengið er inn í forstofu og hol um sameiginlegan inngang. Fataskápur og flísar á gólfi.

Í eldhúsi er falleg ljósbrún viðarinnrétting með miklu skápaplássi. Gott pláss fyrir eldhúsborð. Flísar á milli efri og neðri skápa, harðparket á gólfi.

Björt og rúmgóð stofa . Harðparket á gólfi.

Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum og harðparketi á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt. Baðkar með sturtuaðstöðu. Handlaug og upphengt salerni.

Nánari lýsing á efri hæð:

Gengið er upp stigagang með nýlegu kókosteppi.

Eldhús með nýlegri innréttingu og gott pláss fyrir eldhúsborð. Harðparket á gólfi.

Björt stofa og möguleiki á að bæta við svefnherbergi ef þörf er á. Harðparket á gólfi.

Svefnherbergi með fataskáp

Flísalagt baðherbergi með nýlegri innréttingu og sturtuklefa.

Í kjallara er þvottahús og geymsla sem gengið er í að utanverðu.

Samkvæmt upplýsingum seljenda var húsið einangrað að utan og klætt báruáli árið 2024. Þakjárn var endurnýjað, strompur klæddur og allir gluggar/gler endurnýjaðir (að undanskildum gluggum í kjallara). Lagnir og ofnar hafa verið endurnýjaðir að hluta. Á árinu 2024 var rishæðin tekin í gegn: nýtt baðherbergi, ný eldhúsinnrétting, ný gólfefni, ofnar endurnýjaðir og allt málað.

Húsið lítur einstaklega vel út, bæði að utan og innan. Þetta er falleg og vel við haldin eign á vinsælum stað í Hafnarfirði sem vert er að skoða.

Athugið að húsgögn á myndum í ris hæð eru tölvuteiknuð og sýna innréttingarmöguleika.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.