Laufásvegur 54

101 Reykjavík

Ásett verð: 74.900.000 kr.

Laufásvegur 54
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
79,3 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1923
Fermetraverð
944.515 kr.

Lýsing

Betri Stofan fasteignasala Borgartúni 30 kynnir í einkasölu: Fallega og mikið endurnýjaða 3ja herbergja íbúð með sérinngang í reisulegu húsi á horni Laufásvegar og Njarðargötu. Eignin telur stofu og eldhús saman í opnu rými ásamt tveimur góðum svefnherbergjum, rúmgott nýlega endurnýjað baðherbergi, geymsla og þvottahús í sameign.

Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Sjá hér myndband af eigninni

Lýsing eignar:

Forstofa: Flísar á gólfi.

Stofa: Rúmgóð og björt með bogadregnum gluggum sem snúa út í garðinn, harðparket á gólfi, opin við eldhús.

Eldhús : Hvít endurnýjuð innrétting með góðu skápaplássi, harðparket á gólfi, opið við stofu.

Herbergi 1: Við forstofu, harðparket á gólfi, endurnýjaðir fataskápar.

Herbergi 2: Gott herbergi við stofu, lokað af með rennihurðum sem eru felldar inn í vegginn, væri unnt að nýta sem borðstofu.

Baðherbergi: Endurnýjað fyrir fáeinum árum, flísar á veggjum og gólfi, hvít innrétting undir vaski, upphengt salerni, flísalögð sturta með gleri, handklæðaofn.

Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara (7,3 fm). Einnig fylgir eigninni aðgangur að sameiginlegu þvottahúsi.

Falleg og vel staðsett eign í miðborginni þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og afþreyingu. Húsið var byggt árið 1923 og er arkitekt hússins Guðjón Samúelsson sem teiknað hefur margar af þekktustu byggingum landsins.

Nánari upplýsingar veitir Atli S Sigvarðsson löggiltur fasteignasali í síma 899-1178 eða atli@betristofan.is