Gullsmári 7

201 Kópavogur

Ásett verð: 84.900.000 kr.

Gullsmári 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
104,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1997
Fermetraverð
813.218 kr.

Lýsing

Fasteignasala Sævars Þórs kynnir bjarta, glæsilega og mikið endurnýjaða tveggja herbergja 104 fm útsýnisíbúð á 6. hæð með bílskúr í vinsælu lyftuhúsi fyrir eldri borgara, 60 ára og yfir við Gullsmára 7 í Kópavogi. Um er að ræða einstaklega vel skipulagða eign með glæsilegu útsýni, yfirbyggðum svölum, bílskúr og sér bílastæði. Eignin er í húsi fyrir eldri borgara þar sem boðið er upp á ýmsa þjónustu í húsinu. Íbúðin er í toppstandi og tilbúin til afhendingar án þess að ráðast þurfi í neinar framkvæmdir.

Nánari lýsing eignar:

Forstofa / Hol: Komið er inn í snyrtilega forstofu með góðu skápaplássi.

Stofa og borðstofa: Mjög rúmgott og bjart alrými með gluggum sem njóta sín vel á 6. hæð og bjóða upp á frábært útsýni. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar yfirbyggðar svalir sem nýtast stóran hluta ársins.

Eldhús: Snyrtilegt og vel skipulagt eldhús með vandaðri innréttingu, steini á borðplötu og nýlegum heimilistækjum sem fylgja með í kaupunum.

Svefnherbergi: eitt svefnherbergi, rúmgott og bjart, með miklu og góðu skápaplássi.

Baðherbergi: Nýlega uppgert og glæsilegt baðherbergi með vönduðum innréttingum og tækjum og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Gólfefni: Fallegt ljóst eikarparket er á öllum helstu rýmum íbúðarinnar og flísar á votrýmum.

Geymsla: Sér og rúmgóð geymsla fylgir íbúðinni.

Bílskúr og bílastæði: Eigninni fylgir bílskúr auk þess sem sér bílastæði er við bílskúrinn og næg almenn bílastæði á lóð.

Húsið, þjónusta og staðsetning:

Gullsmári 7 er vel við haldið lyftuhús fyrir eldri borgara (60 ára og eldri) á frábærum stað í Kópavogi. Í húsinu er starfrækt góð þjónusta fyrir íbúa og á efstu hæð hússins er glæsilegur veislusalur með útsýni sem íbúar geta leigt fyrir viðburði. Stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir í Smáralind, heilsugæslu og fallegar gönguleiðir.

Íbúðin er falleg og glæsileg á vinsælum stað í Kópavogi og því tilvalið tækifæri fyrir þá sem eru að minnka við sig og vilja komast í nýlegt og fallegt húsnæði.