Kambasel 69
109 Reykjavík
Ásett verð: 59.900.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 66,1 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1980
- Fermetraverð
- 906.203 kr.
Lýsing
Mikið endurnýjuð og falleg 2ja herbergja íbúð á 2. hæð (gengið upp einn stiga) auk sérmerkt bílastæðis í litlu fjölbýlshúsi við Kambasel 69 í Reykjavík. Eldhúsinnrétting og baðherbergi hefur verið endurnýjað. Sérþvottahús er innan íbúðarinnar. Mjög snyrtileg sameign.
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 66,1 fm. og þar af er geymsla íbúðar 4,9fm.
Nánari lýsing:
Forstofa með fataskáp og flísum á gólfi.
Stofa/borðstofa rúmgóð og björt með stórum gluggum og parketi á gólfi. Útgengt er út á svalir úr stofunni.
Eldhús með nýlegri innréttingu, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð, gufugleypir, gott borðpláss og parket á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með flísum á gólfi.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi og parket á gólfi.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað með innangengri sturtu, góð innrétting, upphengt salerni, handklæðaofn og flísar á veggjum og gólfi.
Geymsla íbúðar er í kjallara hússins.
Sérnerkt bílastæði íbúðarinnar á bílaplani.
Lóðin er fullfrágengin og er skemmtilegt leiksvlði fyrir aftan blokkina.
Eigni hefur verið mikið endurnýjuð:
- 2026 nýr gluggi í stofu og svefnherbergi
- 2025 í lok árs var baðherbergi og eldhús allt endurnýjað
- 2025 nýtt parket og gólflistar
- 2025 nýjar flísar inn í þvottahúsi, baði og forstofu
- 2023 sameign máluð og ný teppi
- 2022 nýr dyrasími
- 2022 nýr gluggi í eldhúsi
- 2023 sameign máluð og ný teppi
Mjög falleg og mikið endurnýjuð íbúð og vel staðsettt þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, verslanir, skóla og leikskóla.
Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is eða Viktoría Larsen í síma 6185741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is