Borgarbraut 57
310 Borgarnes
Ásett verð: 52.000.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 96,6 m²
- Herbergi
- 3
- Svefnherbergi
- 2
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2018
- Fermetraverð
- 538.302 kr.
Lýsing
Nes fasteignasala ehf kynnir eignina:
Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.
Um er að ræða mjög góða 3ja herbergja íbúð fyrir 50 ára og eldri á 2. hæð merkt 201, í 7 hæða lyftuhúsi, sem byggt var árið 2018. Íbúðin er 83,5 fm að stærð skv. skráningu HMS. Svalir eru 6.3 fm mót suðri. Að auki er sér geymsla ofl. í kjallara sem skráð er 12,8 fm.
Nánari lýsing:
Sameign:
Flísalagt anddyri, lyfta, hjólageymsla og teppalagður stigagangur í sameign.
Íbúð:
Forstofa rúmgóðir fataskápar.
Eldhús með smekklegri innréttingu og góðum AEG tækjum. Öll tæki í eldhúsi, þar með talinn ísskápur fylgja.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, sturtu og innréttingu. Stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Stofa er björt og þaðan er gegnt er út á suðursvalir.
Svefnherbergi eru 2, gott skápapláss í hjónaherbergi.
Geymsla er í sameign í kjallara, þar er einnig sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Íbúðin er mjög smekkleg og vel um gengin. Nýtt parket er á öllum gólfum utan votrýmis.
Nánari upplýsingar veitir Þórarinn Halldór Óðinsson lögg. fasteignasali, í síma 497-0040 eða 865-0350, tölvupóstur thorarinn@fastnes.is
Nes fasteignasala ehf. Borgarbraut 57, 310 Borgarnes.