Vefarastræti 20

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 56.900.000 kr.

Vefarastræti 20
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
59 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
2017
Fermetraverð
964.407 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg 59,0 m2, 2ja herbergja íbúð á jarðhæð í lyftuhúsi við Vefarastræti 20 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 59,0 m2, þar af íbúð 51,7 m2 og geymsla 7,3 m2. Eignin skiptist í stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi/þvottaherbergi. Sérgeymsla er í sameign í kjallara. Vandaðar innréttingar og innfelld lýsing hönnuð af Lúmex. Afgirtur sérafnotareitur í austurátt. Frábær staðsetning rétt við grunnskóla, leiksskóla og fallegar gönguleiðir. Stutt í næstu strætóstoppistöð.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing:

Stofa og eldhús eru í opnu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting með blástursofni, helluborði, háf og innbyggðum litlum ísskápi. Fataskápur er við stofu. Úr stofu er gengið út á afgirta verönd með hellum og grasi.

Svefnherbergi (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.

Baðherbergi/þvottaherbergi er flísalagt, með innréttingu, upphengdu salerni og 'walk in' sturtu. Í innréttingu er gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.

Sérgeymsla er í sameign í kjallara, skráð 7,3 m2.

Húsið: Húsið er staðsteypt, klætt báruáli frá Áltak. Innsteypt innfelld lýsing er undir svölum. Hiti undir steyptri stétt. Rafmagnsopnari í anddyrum, póstkassar og mynddyrasími. Teppa- og flísalögð sameign. Lýsing frá Lumex í sameign. Hljóðplötur í sameign til að dempa hljóð utan íbúðar. Hjóla og vagnageymsla er í sameign. Sameignilegar hleðslustöðvar eru við bílastæði.

Verð kr. 56.900.000,-