Eyrar 14
276 Mosfellsbær
Ásett verð: 34.900.000 kr.

- Tegund
- Sumarhús
- Stærð
- 55,0000007629395 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 1978
- Fermetraverð
- 634.545 kr.
Lýsing
** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Fallegt sumarhús á 2.237 m2 leigulóð við Eyrar 14 í landi Meðalfells í Eilífsdal, Kjósarhreppi. Lóðin er skjólgóð með miklum gróðri. Eignin er skráð 29,8 m2 en skv. upplýsingum frá seljanda er heildin um 55 m2. Gestahús og geymsla eru ekki í skráðum fermetrum. Húsið var endurnýjað að mörgu leyti, utan sem innan, 2010. Nýtt þak, gler og gluggar, klæðningar utan sem innan og ný einangrun í veggjum. Gesthús byggt 2010.
Búið er að taka inn hitaveitu í húsið. Ljósleiðara er við lóðamörk. Timburverönd í kringum allt húsið. Nýlegur heitur pottur (hitaveita með stýringu) á verönd. Stór grasflöt inn af innkeyrslu sem hægt er nýta fyrir tjöld og vagna. Lokað svæði með hliði (rafmagnshlið). Aðeins ca. 40 mín akstur frá Reykjavík. Nýlega var gerður 25 ára nýr lóðarleigusamningur. Kalt vatn á svæðinu er hreinsað með geislun.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Forstofa : Er með parketi á gólfi og litlum skáp.
Svefnherbergi eru tvö og með parketi á gólfi og rúmum.
Baðherbergi : Er með innréttingu, salerni og sturtu.
Eldhús, stofa og borðstofa: Er í björtu rými með parketi á gólfi. Í eldhúsi er falleg innrétting með eldavél og vaski.
Geymsla : Er með parketi á gólfi og glugga. Gengð er bæði út á timburverönd og í sumarhúsið út geymslu. Væri hægt að nýta sem svefnherbergi.
Gestahús: er með parketi á gólfi.
Möguleiki er að fá hluta af búslóð með í kaupum á eigninni.
Gjöld: Fasteignagjöld 2026 eru kr. 106.980. Brunatrygging 2026-2027 er kr. 19.207. Lóðarleiga 2026 er kr. 182.286. Félagsgjald í sumarhúsafélag Valshamars er kr. 50.000 fyrir árið. Greitt í tvennu lagi. Hitaveitgjöld kr. 20.283 á mánuði. Rafmagnskostnaður er um kr. 7.000 en er breytilegt eftir notkun.
Verð kr. 34.900.000,-