Goðanes 1b eign 103

603 Akureyri

Ásett verð: 63.900.000 kr.

Goðanes 1b eign 103
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
143,4 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2024
Fermetraverð
445.607 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur

Goðanes 1b eignarhluti 103 - Nýlegt(2024) vel innréttað húsnæði á tveimur hæðum við Goðanes 1b á Akureyri, skráð 143,4 m² að stærð.

Lóðin er leigulóð í eigu Akureyrarbæjar, 4.049,1 m² að stærð.

Hér er um að ræða vel staðsett húsnæði sem getur hentað fyrir fjölbreyttan rekstur.

Neðri hæðin er skráð 73,7 m² að stærð - um 12 metrar á dýpt og um 5,9 metrar á breidd. Hæð upp í milliloft er um 3,3 metrar.

Efri hæðin er skráð 69,7 m² að stærð

Á neðri hæð er alrými með gráu epoxy á gólfi. Þar er stór rafdrifin innkeyrsluhurð og bekkur vask.

Snyrting er undir stiga með upphengdu wc, handlaug og lögnum fyrir sturtu.

Timburstigi er á milli hæða.

Efri hæðin skiptist í eldhús, sjónvarpshorn, baðherbergi og þrjú herbergi.

Ljóst harðparketi er á öllum gólfum fyrir utan baðherbergi þar eru flísar.

Eldhúsinnrétting er í miðrýminu og þar eru loft tekin upp og klædd með hljóðdempandi þiljum. Innréttingin er brúnleit og með innbyggðum ísskáp með frysti og uppþvottavél.

Sjónvarpshorn er með harðparketi á gólfi og hurð út á vestur svalir, skráðar 4,5 m² að stærð. Loft er tekið upp, með innfelldri lýsingu og klætt með hljóðdempandi þiljum.

Herbergin eru þrjú , öll með harðparketi á gólfum og innfelldri lýsingu í loftum.

Baðherbergi er með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, upphengdu wc, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Búið er að lekta, einangra og klæða langveggi á efri hæðinni. Loft eru klædd með hljóðdempandi þiljum og með innfelldri lýsingu.

Annað

- Gólfhiti er á neðri hæð og ofnar á efri hæð.

- Sér mælar fyrir hita og rafmagn

- Malbikað bílastæði, hitalagnir er ca 6 metra út frá húsi.

- Á bílaplani er sér merkt auka stæði fyrir hvern eignarhluta, um 30 m² hvert stæði.

Á eigninni hvílir vsk-kvöð og er gert ráð fyrir að hún sé yfirtekin auk kaupverðs, þ.e. kaupverð er tiltekið án vsk kvaðar.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.