Maltakur 1b
210 Garðabær
Ásett verð: 72.500.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 82,7 m²
- Herbergi
- 2
- Svefnherbergi
- 1
- Baðherbergi
- 1
- Byggingarár
- 2009
- Fermetraverð
- 876.663 kr.
Lýsing
Brynjar Ingólfsson, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX, kynnir bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á efstu hæð við Maltakur 1B í Akrahverfi í Garðabæ. Íbúðin er með sérinngangi, rúmgóðum suðvestursvölum og fallegu útsýni yfir Garðabæ.
- Efsta hæð með sérinngangi
- Einstök kyrrð að sögn eiganda, sem líkir rólegu umhverfinu við sveitina
- Rúmgóðar suðvestursvalir með útsýni
- Opið alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi
- Sjónvarpskrókur sem nýtist einnig sem vinnuaðstaða
- Sér þvottahús innan íbúðar
- Gólfhiti í forstofu, þvottahúsi og baðherbergi
Nánari lýsing
Forstofa. Gengið er inn um sérinngang í flísalagða forstofu með rúmgóðum fataskápum sem ná upp í loft.
Stofa og borðstofa. Bjart alrými með parketi á gólfi og stórum glugga í stofu sem snýr að svölunum. Innaf borðstofu er opinn sjónvarpskrókur sem einnig má nýta sem vinnuaðstöðu.
Eldhús. Eikarinnrétting með ljósum borðplötum og glugga yfir vaski. Helluborð og innbyggður ofn eru í skaga með gufugleypi yfir og sæti við borðplötuna. Úr eldhúsi er gengið út á rúmgóðar suðvestursvalir með opnu útsýni yfir hverfið.
Svefnherbergi. Parket á gólfi og fataskápar sem ná upp í loft eftir heilum vegg.
Baðherbergi. Flísalagt gólf og veggir, baðkar með sturtu og glerþili, upphengt salerni og eikarinnrétting með ljósri borðplötu.
Þvottahús. Sér þvottahús innan íbúðar með flísum á gólfi, hvítri innréttingu, vaski og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla í sameign, 9.6 m²
Næg bílastæði og hleðslustöðvar eru fyrir framan hús.
Íbúðin er í Akrahverfi í Garðabæ, með göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni og stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veitir Brynjar Ingólfsson, löggiltur fasteignasali hjá RE/MAX.