Merkiland 10

800 Selfoss

Ásett verð: 98.900.000 kr.

Merkiland 10
Tegund
Einbýlishús
Stærð
193,9 m²
Herbergi
6
Svefnherbergi
5
Baðherbergi
2
Byggingarár
1980
Fermetraverð
510.057 kr.

Lýsing

Litla Fasteignasalan s: 482-9900 kynnir -

Huggulegt einbýlishús í rólegum botnlanga með bílskúr og auka íbúð

Fallegur skjólsæll bakgarður með nýjum palli, heitum potti og gróðurhúsi

Lýsing eignar:

Forstofa með flísum á gólfi

Stofa með uppteknu lofti og skiptist í borðstofu og stofu með parketi á gólfi. Útgengt er á verönd /pall úr stofu.

Inn af stofu er rými sem hægt er að nýta sem fjórða svefnherbergið .

Eldhús með ljósri innréttingu, nýr bakaraofn í vinnuhæð, nýtt spanhelluborði, tengi fyrir uppvöskunarvél í vinnuhæð og flísar á gólfi.

Gott rými er fyrir borðkrók og útgengt er út á verönd /pall, þar er einnig innangengt í þvottahús.

Hjónaherbergi með stórum fataskáp og parket á gólfi

Svefnherbergi 2 með fataskáp, parket á gólfi

Svefnherbergi 3 með parketi á gólfi

Baðherbergi er með flísalögðu gólfi og hluta af veggjum, inngengri sturtu, góðri innréttingu með handlaug, upphengdu salerni og handklæðaofni

Þvottahús með innréttingu og vaski, gott skápapláss, flísar á gólfi og útidyrahurð

Bílskúr er frístandandi og 55m 2 að stærð, í aftari hluta hans er búið að útbúa íbúð.

Auka íbúð með sérinngangi og skiptist í stofu , eldhús með snyrtilegri innréttingu, herbergi inn af stofu og baðherbergi með sturtu.

2025 - Nýr pallur smíðaður með skjólveggjum og nýr heitur pottur með loki

2024 - Nýtt spanhelluborð og bakarofn

2024 - Hluti húss og glugga málaðir

2022 - Baðherbergi endurnýjað

2022 - Dregið í nýtt rafmagn í baðherbergi og einu svefnherbergi

2022 - Nýjar kalda- og heitavatns heimtaugar inn í hús

2021 - Íbúð í bílskúr stækkuð og herbergi bætt við

2020 - Útidyrahurð út á pall úr stofu endurnýjuð

Garðurinn er gróinn, snýr til suðurs og er skjólsæll með 13,5 m 2 gróðurhúsi.

Nýr pallur, með skjólveggjum og heitum potti, hellulögð verönd og aðgengi að bílskúr.

Innkeyrsla er stór og hellulögð með snjóbræðslu

Sjáið staðsetningu

Frábær staðsetning innst í skjólsælum botnlanga.

Eign með möguleika á leigutekjum og stutt að sækja ýmiskonar þjónustu.

Nánari upplýsingar veitir

Sigþrúður J. Tómasdóttir

sími 892-0099 sissu@litlafasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Litla Fasteignasalan benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.