Brekkuás 3

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 89.700.000 kr.

Brekkuás 3
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
106 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
846.226 kr.

Lýsing

Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali (bjarni@remax.is/s: 662-6163 ) kynnir glæsilega bjarta íbúð í lyftuhúsi á þriðju hæð með stórkostlegu útsýni í Áslandinu í Hafnarfirði. Sérinngangur af svölum. Tvennar svalir. Bílastæði í bílageymslu með tengi fyrir rafhleðslu. Samkvæmt HMS er íbúðin 106 m² og þar af er 7,9 m² geymsla. Skipting eignarinnar : Anddyri, tvö svefnherbergi, stofa, borðstofa, eldhús, baðherbergi, þvottahús og geymsla auk reglubundinnar sameignar og stæðis í lokaðri bílageymslu.

Helstu kostir eignarinnar:

- Stórar svalir sem snúa í suður

- Borðstofa með með glæsilegu útsýni í átt að Reykjavík.

- Vönduð eldhúsinnrétting frá Brúnás, steinn á borðum.

- Nýtt BOEN eikarparket frá Ebson á íbúðinni

- Þvottahús, innan íbúðar.

- Einkabílastæði í upphituðum bílakjallara með rafhleðslu

Nánari lýsing á eigninni:

Anddyri : með fataskáp og flísum á gólfi.

Eldhús : með vandaðri eikarinnréttingu, útdraganleg Grohe blöndunartæki, uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, steinn á borðum og parket á gólfi.

Borðstofa : við hlið eldhússins með parketi á gólfi og fallegum hornglugga með glæsilegu útsýni í átt að Reykjavík.

Stofa : með parketi á gólfi og útgengi út á stórar suðursvalir og minni vestur svalir.

Svefnherbergi I : með fataskápum og parketi á gólfi.

Svefnherbergi II : með fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi : flísalagt í hólf og gólf, innrétting, sturtuklefi, upphengt salerni og handklæðaofn.

Þvottahús : með skáp, skolvaski og flísum á gólfi.

Geymsla : 7,9 m² sérgeymsla í sameign auk sameiginlegrar hjólageymslu.

Bílastæði : sérstæði í upphitaðri bílageymslu merkt B-04 og opin bílastæði fyrir framan húsið. Staurar fyrir rafmagnshleðslu eru á bílaplani og tengi fyrir rafmagnshleðslu í bílastæðinu.

Staðsetning í fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í skóla og leikskóla og fallegar gönguleiðir.

Þetta er virkilega falleg eign á vinsælum stað með einstöku útsýni. Vel við haldin eign í góðu fjölbýli. Byggingaverktakar Gunnar og Ólafur ehf.

Allar upplýsingar um eignina veitir Bjarni Blöndal löggiltur fasteignasali í síma 662 6163 eða bjarni@remax.is.

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar, sjá upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.