Heiðarbyggð 31

606 Akureyri

Ásett verð: 41.900.000 kr.

Heiðarbyggð 31
Tegund
Sumarhús
Stærð
99,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1988
Fermetraverð
421.954 kr.

Lýsing

Sumarhús við Heiðarbyggð í Vaðlaheiðinni gegnt Akureyri - samtals 99,3 m² að stærð.

Húsið skiptist í forstofu, geymslu/tæknirými, stofu og eldhús í einu rúmgóðu alrými, baðherbergi og tvö svefnherbergi.

Forstofan er með ljósu harðparketi á gólfi

Geymsla og tæknirým i er innaf forstofu.

Eldhús og stofa er í einu opnu rúmgóðu alrými hvar loft eru tekin upp. Nýleg sprautulökkuð eldhúsinnrétting með eldunareyju. Útgangur er á rúmgóða verönd úr eldhúsi.

Svefnherbergin eru tvö og eru þau bæði rúmgóð. Í öðru herbergjanna hafa loft verið tekin niður þar er innfell lýsing. Hitt herbergið er með svefnplássi fyrir 5 - 6 manns og þar eru m.a. þrjú upphengd svefnpláss/rúm.

Baðherbergið er flísalagt bæði gólf og veggir. Á baðherberginu er sturta, upphengt wc og handklæðaofn.

Rúmgóð verönd er með suður og vesturhlið hússins og þar er heitur pottur.

Húsið er með skráð byggingarár 1988 og flutt á núverandi stað árið 2008. Húsið var allt tekið í gegn að innan árið 2018 og þá var skipt um öll gólfefni, eldhús og baðherbergi endurnýjað og loft tekin niður í svefnherbergi. Einnig voru raflagnir endurnýjaðar að hluta.

Annað

- Lóðin er 3.225 m² leigulóð.

- Rafmagnskynding er í húsinu með vatnsofnum og varmadælu.

- Vatnsinntak var endurnýjað 2024.

- Frábært útsýni

Upplýsingar um rekstrarkostnað:

- Lóðarleiga kr. 110.000.- á ári

- Hverfisfélag kr. 10.000.- á mánuði

- Rafmagn kr. 30.000.- (heitur pottur alltaf í gangi)

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.