Litlikriki 2

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 109.900.000 kr.

Litlikriki 2
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
170,7 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2008
Fermetraverð
643.820 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu skoðun - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og björt 5 herbergja íbúð á 1. hæð í lyftuhúsi með bílskúr í kjallara við Litlakrika 2 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 170,7 m2, þar af íbúð 127 m2, geymsla 12,2 m2 og bílskúr 31,5 m2. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, forstofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Nýtt parket er á gólfi. Bílskúr og geymsla eru í kjallara. Timburverönd í suðurátt. Bílskúr er með epoxýmálningu á gólfi. Geymsla er inn af bílskúr. Af geymslugangi er gengið inn á stigagang með lyftu. Fyrir framan hús er merkt stæði. Búið er að setja upp hleðslustöðvakerfi frá ON við sameiginleg bílastæði. Vinsæl staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í verslun og alla helstu þjónustu.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:

Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskápum.

Stofa og borðstofa er í björtu opnu rými með parket á gólfi. Úr stofu er útgengt á timburverönd í suðurátt.

Eldhús er með flísum á gólfi og góðri innréttingu með bakaraofni, helluborði og vaski. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél i innréttingu.

Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parket á gólfi og góðum fataskáp.

Svefnherbergi 2 er með parket á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi og fataskáp.

Svefnherbergi 4 er með parket á gólfi.

Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum að hlutað, innréttingu með handlaug, baðkari, sturtu, handklæðaofni og vegghengdu salerni.

Þvottaherbergi er flísalagt, með innréttingu og handlaug. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu í vinnuhæð

Bílskúr er í kjallara, 31,5 m2. Innkeyrsluhurð með bílskúrshurðaopnara. Inn af bílskúr er sér geymsla , 12,2 m2. Af geymslugangi er gengið inn á stigagang með lyftu.

Eigninni fylgir hlutdeild í hjóla- og vagnageymslu í kjallara.

Verð kr. 109.900.000,-