Gjáhella 17

221 Hafnarfjörður

Ásett verð: 65.000.000 kr.

Gjáhella 17
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
140,2 m²
Herbergi
1
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
1
Byggingarár
2022
Fermetraverð
463.623 kr.

Lýsing

Rúnar Örn Rafnsson og Fasteignasalan Grafarvogi kynna:

Gott iðnaðar- og geymslubil á tveimur hæðum við Gjáhellu 17, Hafnarfirði.

Birt stærð eignar skv. fasteignaskrá er 140,2 m², sem skiptist þannig: 72 m² á jarðhæð og 68,2 m² á efri hæð.

Nánari lýsing neðri hæð:

Neðri hæðin er skráð fyrir léttan iðnað. Gólfið er málað með epoxy efni. Salernisaðstaða með vaski er á hæðinni.

Stór og góð innkeyrsluhurð með rafmagnsopnun. Einnig góð gönguhurð. Gólfhiti er á jarðhæðinni.

Sér rafmagnstafla með 3ja fasa rafmagni. Inntak fyrir heitt og kalt vatn er til staðar.

Mál á innkeyrsluhurð: breidd: 360 sm. Hæð: 363 sm. (nýtileg hæð þegar hurð er opin: 347 sm.)

Nánari lýsing efri hæð:

Efri hæðin er skráð sem geymsla en hefur verið innréttað sem opið skrifstofurými. Parket á gólfi og kaffiaðastaða með vaski.

Góðir ál/tré gluggar eru á hæðinni með opnanlegu fagi. Þakgluggar gefa skemmtilega birtu í þetta rými.

Lóðin fyrir framan er frágengin og malbikuð.

Nánari upplýsingar veitir:

Rúnar Örn Rafnsson, löggiltur fasteignasali

Fasteignasalan Grafarvogi

S: 771-5600

runar@fastgraf.is