Gudmannshagi 1 103

600 Akureyri

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Gudmannshagi 1 103
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
78,7 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2021
Fermetraverð
824.651 kr.

Lýsing

Kasa fasteignir 461-2010.

Gudmannshagi 1 íbúð 103. Björt og falleg 4 herbergja 78,7 fm íbúð á jarðhæð í nýlegri lyftublokk ásamt sér bílastæði í bílakjallara.

Eignin skiptist í forstofu, baðherbergi þar sem gert er ráð fyrir þvottaaðstöðu, eldhús, stofu, gang, hjónaherbergi og tvö barnaherbergi.

Íbúðinni fylgir geymsla i kjallara og verönd til norðurs ásamt sér merktu stæði í bílakjallara.

Forstofa : Flísar á gólfi & rúmgóður fataskápur.

Stofa : Harðparket á gólfum. Gengið er út á norðurverönd úr stofu.

Eldhús : Hvít háglans innrétting efri- og neðri skápum. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Ágætis bekkjarpláss með vaski. Harðparket á gólfum.

Baðherbergi : Hvít háglans innrétting með góðu skápaplássi og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Innangeng sturta með sturtuglerjum. Vegghengt salerni og handklæðaofn. Flísar á gólfi og hluta af veggjum.

Hjónaherbergi : Rúmgott herbergi með harðparketi á gólfi og hvítum opnum fataskáp.

Barnaherbergi : Tvö herbergi með harðparket á gólfi.

Geymsla : Sér geymsla í sameign, rúmgott rými með rafmagnstengli og lökkuðu gólfi.

- Gólfhiti í allri íbúðinni.

- Þvotta aðstaða fyrir bíla í bílakjallara

- Sér rafbíla tengill við bílastæði í kjallara.

- Allar innréttingar eru hvítar háglans frá HTH.

- Vönduð og góð eign.

Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is

------------

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Teikningar sem birtar eru í auglýsingu og söluyfirliti eru eingöngu til viðmiðunar og sýna núverandi skipulag eignarinnar. Ekki er ábyrgst að þær séu samþykktar teikningar eða í samræmi við opinber byggingargögn.