Foldahraun 37

900 Vestmannaeyjar

Ásett verð: 41.800.000 kr.

Foldahraun 37
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
67,1 m²
Herbergi
2
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1975
Fermetraverð
622.951 kr.

Lýsing

Foldahraun 37-íbúð 0104 Vestmannaeyjum

Um er að ræða tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í raðhúsi. Samkvæmt fasteignaskrá er íbúðin 58,1 fm, sérgeymsla 7,2 fm og sorpgeymsla 1,8 fm, heildarfermetrar eru því 67,1 fm. Eignin skiptist svo:

Forstofa/anddyri/Hol, rúmgott með flísum á gólfi, sér inngangur á jarðhæð, góður skápur

Baðherbergi með flísum í hólf og gólf, walk in sturta, handklæðaofn, tengi fyrir þvottavél, skúffur/skápur.

Svefnherbergi með parketi á gólfi

Stofa/borðstofa með parketi, útgangur í vestur, góður c.a. 24 fm timburpallur, upphengdur hvítur skenkur fylgir með í sölu.

Eldhús með hvítri innréttingu og flísum á gólfum.

Eignin er vel staðsett með útsýni yfir Smáeyjar og stutt er í Hamarsskóla og leiksvæði við hann, Herjólfsdal, golfvöll og íþróttasvæði.

Framkvæmdir hafa verið í gangi við eignina að utan á vegum húsfélagsins m.a. hefur verið múrað, þak yfirfarið og málun er að ljúka.

Sérgeymsla er í kjallara og geymsla (var áður sorpgeymsla) framan við húsið

Nánari upplýsingar veitir Helgi Bragason, lögmaður og lögg. fasteignasali, hb@eyjar.is, gsm 8931068