Fornhagi 11

107 Reykjavík

Ásett verð: 84.900.000 kr.

Fornhagi 11
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
99,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1957
Fermetraverð
854.985 kr.

Lýsing

Valhöll fasteignasala kynnir 4 herbergja íbúð á efstu hæð í Fornhaga 11, 107 Reykjavík.

Stutt er í alla helstu þjónustu sem og skóla, háskóla og matvörubúð.

Íbúðin er á 3. hæð (efstu hæð), í dag hefur eigninni verið breytt og komið fyrir 6 svefnherbergjum, 2 baðherbergjum og 1 eldhúsi. Komið er inn í forstofu við hol sem leiðir þig í allar vistaverur íbúðar. Lítið fataherbergi/geymsla á vinstri hönd.

Stærð íbúðar er uppgefin 99,3 fm, þar af er 6,7 fm geymsla í kjallara. Svalir eru 3,1 fm en sú stærð er ekki talin með í heildar fermetrum. Í kjallara er geymsla ásamt hjóla- og vagngeymslu og sameignlegu þvottahúsi.

ATH: Allt innbú getur fylgt með íbúðinni.

Ytra byrði hússins hefur fengið gott viðhaldið í gegnum tíðina, sjá nánar neðar í lýsingu.

NÁNARI LÝSING

Forstofa/Gangur: Opin inn við gang með flísum á gólfi, skápur/fatahengi á vinstri hönd og parket á gólfi gangs.

Eldhús: með ljósri innréttingu, flísar á gólfi.

Baðherbergi 1: með baðkari, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, innréttingu undir vaski, glerskáp á vegg og flísum á gólfi og veggjum.

Baðherbergi 2: með sturtuklefa, lítilli innréttingu undir vask, flísar á gólfi og veggjum.

Svefnherbergi 1: gengið inn af gangi, parket á gólfi.

Svefnherbergi 2: gengið inn af gangi, parket á gólfi.

Svefnherbergi 3: gengið inn af gangi, parket á gólfi.

Svefnherbergi 4: gengið inn af gangi, útgengi út á svalir, parket á gólfi.

Svefnherbergi 5: gengið inn af gangi, gluggar á suður og vestur hlið, parket á gólfi.

Svefnherbergi 6: gengið inn af eldhúsi, parket á gólfi.

Sérgeymsla: er í kjallara, um 6,7 fm að stærð.

Sameign: Í kjallara hússins er þvottahús/þurrkherbergi ásamt hjóla og vagnageymslu.

Viðhald á húsinu undanfarin ár:

2026/Yfirstandandi framkvæmdir: Verið er að skipta út stamma í húsinu og út í götu, drena í kringum húsið, einnig er verið að skipta út heita og kaldavatns lögnum.

2025: Allar rafmagnstöflur í húsinu endurnýjaðar.

2022: Nýjir gluggar í íbúðinni á suður og vestur hlið, svalahurð var einnig skipt út. Skipt um glugga að hluta til í sameign. Gluggar á austur hlið voru metnir í góðu ástandi svo ekki var þörf á að skipta þeim út.

-Dregið hefur verið nýtt rafmagn í alla íbúðina fyrir u.þ.b 20 árum samkvæmt seljanda.

-Húsið var steinað að utan fyrir nokkrum árum síðan.

Frekari upplýsingar um eignina veita:

Óskar H Bjarnasen löggiltur fasteignasali/lögmaður í síma 6911931 eða oskar@valholl.is

Guðrún Margrét Gísladóttir aðstoðarmaður fasteignasala í síma 6169552 eða gudrun@valholl.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valhöll fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.