Birkilundur 17a

341 Stykkishólmur

Ásett verð: 9.900.000 kr.

Birkilundur 17a
Tegund
Lóð
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0

Lýsing

Trausti fasteignasala kynnir í einkasölu sumarhúsalóðin BIRKILUNDUR 17A, 341 Stykkishólmi.

Um er að ræða 4523 fm. eignarlóð sem er skipulögð sem sumarhúsalóð . Á lóðinni hefur þegar verið hafin uppbygging sumarhúss, en framkvæmdum er ólokið. Húsið er komið á undirstöður og ytra byrði að hluta til komið upp, en eftir er að ljúka frekari byggingarframkvæmdum bæði að utan og innan. Kaupendur taka við eigninni í núverandi ástandi og þurfa að gera ráð fyrir áframhaldandi framkvæmdum og frágangi í samræmi við gildandi skipulag og byggingarreglugerðir.

Smelltu hér til að sækja söluyfirlit

Nánari lýsing:

Sumarhúsalóð : Stærð 4523 fm, spildu úr landi Saura í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Landnúmer: L196695

Sumarhús : Uppbygging hófst árið 2025, en framkvæmdum er ólokið.

Samkvæmt skipulagsskilmálum er heimilt að byggja eitt frístundahús og tvö aukahús á lóðinni. Heildarbyggingarmagn er að hámarki 120 fm. og skal byggingarefni vera timbur að eins miklu leyti og kostur er.

Aukahús mega m.a. þjóna sem geymsla, svefnhýsi, listasmiðja, gufubað, gestahús og/eða garðhús. Sameiginleg stærð aukahúsa teljast með í byggingarmagni lóðar.

Birkilundur í Sauraskógi er fallegt og friðsælt hverfi þar sem saman fer blönduð byggð sumarhúsa og íbúðarhúsa. Umhverfið einkennist af grónu kjarri og skjólgóðu landslagi sem skapar notalega og afslappandi stemningu.

Á svæðinu er að finna fjölbreyttar og skemmtilegar gönguleiðir sem bjóða upp á útivist við allra hæfi. Stykkishólmur er í um 12 mínútna akstursfjarlægð, þar sem finna má alla helstu þjónustu, svo sem sundlaug, verslanir, golfvöll og veitingahús.

Allar frekari upplýsingar veita:

Anton Y. Sakornram , aðstoðarmaður fasteignasala, s. 779-5463 / anton@trausti.is

Kristján Baldursson , löggiltur fasteignasali, s. 867-3040 / kristjan@trausti.is

Bóka verðmat

[link]

Trausti á Facebook