Vallarbyggð 2

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 170.000.000 kr.

Vallarbyggð 2
Tegund
Einbýlishús
Stærð
217,400000762939 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
3
Byggingarár
2001
Fermetraverð
781.969 kr.

Lýsing

** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:

Fallegt, vel skipulagt og fjölskylduvænt einbýlishús á einni hæð með aukaíbúð við Vallarbyggð 2, 220 Hafnarfirði.

Eignin hefur verið mikið endurbætt og býður upp á glæsilega útiaðstöðu með nýlegri og afar vandaðri verönd sem hönnuð var af Birni Jóhannssyni landslagsarkitekt hjá URBAN BEAT . Hönnunin tekur mið af þægindum allrar fjölskyldunnar og þar má finna heitan pott, kaldan pott, sauna, tvær kaldar geymslur og skjólveggi sem veita skjól fyrir helstu vindáttum.

SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT ásamt öðrum upplýsingum um eignina SAMSTUNDIS

Samkvæmt skráningu HMS er heildarstærð eignarinnar 217,4 fm og þar af er bílskúr skráður 56,7 fm. Tekið hefur verið af bílskúrnum fyrir um 20 fm stúdíóíbúð með sérinngangi og svefnlofti.

Um er að ræða einstaklega góða og fjölskylduvæna eign þar sem aðalíbúð og aukaíbúð skapa fjölbreytta möguleika, hvort sem er fyrir stóra fjölskyldu, útleigu eða aðstöðu fyrir aðstandendur.

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum

SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagna

Framkvæmdir seljanda síðustu ára.

2019 - Bílskúr skipt upp og útbúin stúdíóíbúð með svefnlofti. Milliveggur settur upp sem skiptir upp íbúð og bílskúr. Nauðsynleg vatnsvörn

2019 - Skápainnrétting sett upp í bílskúr, samhliða þrifavaskur settur í bískúr og sá pípulagningameistari um lagnir í bílskúr og íbúð.

2019 - Gluggar og hurðir pússaðar og málaðar at utanverðu.

2019 - Bætt við eldhúsinnréttingu og hún plöstuð

2022 - Aðal - baðherbergi allt endurnýjað.

2026 - Flísalagt anddyri

2026 - Baðherbergi við forstofu endurnýjað:

- Flísalögn bæði gólf og veggir

- Skipt um vegghengt salerni, innréttingu, vask, sett sturta og sturtuklefi - Walk in sturta.

Framkvæmdir seljenda síðustu ára - Lóð - Garður - Ytra byrði:

2020 -

- Brotfleig þurfti til að fjarlægja hraunkant í garði.

- Jarðvegsskipti fyrir hellulögn, niðurfallslagnir í garði settar ásamt vatnslögn fyrir heitan pott, kaldan pott og útisturta sett af pípulagningameistara

- Heitur pottur settur frá Trefjum - Kaldur pottur settur

- Undirstöður fyrir pall, skjólgirðingu og pergolu. Allt svæði hellulagt með 60x60 hellum frá BM Vallá.

- Hraunhleðsla fyrir blómabeð úr sérvöldu hrauni úr lóðinni.

- Skjólgirðing og útigeymslur smíðaðar

- Útilýsing sett upp með sólúri

2021 - Útisturta byggð

2021 - Þakkanntur málaður.

2021 - Hellulögn á svæði sunnan og vestan megin:

- Jarðvegsskipti fyrir hellulögn og hellulagt bílastæði

- Hlaðinn veggur fyrir framan hús og aðkoma að húsi

- Kantsteinn settur meðfram húsi, bætt við skjólgirðingu, beð sett meðfram húsi og sérvalin gróður settur í öll beð

- Ruslaskýli byggt og lagfærð og tyrft umferðareyja

2022 - Pergola byggð - Markísa sett í garð - Útdraganleggir skjólveggir

2022 - Hitalampar settir við útgöngu í suður út í garð

2025 - Gufuklefa bætt við

2025 - Bætt við hraunhleðslu

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.is

Innan íbúðarrýmis er forstofa, 3 herbergi, 2 baðherbergi, fataherbergi, eldhús, stofa, borðstofa, sjónvarpsstofa, gangur, þvottahús og innangengur bílskúr.

Nánari lýsing eignar:

Forstofan er björt og rúmgóð og nýlega flísalögð (febrúar 2026). Úr forstofu er eitt svefnherbergi og gengið inn í bílskúrinn.

Komið er úr forstofunni inní stórt alrými þar sem eru samliggjandi í opnu og björtu rými með mikilli lofthæð og stórum gluggum í þrjár áttir; sjónvarpsstofa, stofa, borðstofa og eldhús.

Eldhúsið er með góðri innréttingu, vel skipulögðu skápaplássi, innbyggðum ísskáp, tengi fyrir uppþvottavél og góðu vinnuplássi. Hluti skápahurða eru filmaðar. Borðstofan er rúmgóð og björt.

Stofan og sjónvarpsstofa eru í góðu flæði við borðstofuna og eldhúsið. Gólfsíðir gluggar til suðurs og vesturs veit mikla birtu. Útgengt er úr stofu út í fallegan garðinn og á glæsilega verönd.

Svefnherbergin eru þrjú og eru öll mjög rúmgóð og með mikilli lofthæð. Tvö eru við svefnherbergisganginn en það þriðja er inn af forstofunni.

Herbergi I: Er hjónaherbergið sem er vinstra megin af ganginum og inn af því er stórt fataherbergi sem tengist einnig inn í þvottahús.

Herbergi II : Er hægra megin af ganginum og er með góðum fataskápum. Hægt er að gera setja svefnloft eða bara háaloft.

Herbergi III : Er inn af forstofunni og er mjög rúmgott með góðum fataskápum og stóru svefnlofti.

Tvö baðherbergi eru innan íbúðarrýmis og eru bæði endurnýjuð.

Baðherbergi I sem er við svefnherbergisganginn var allt endurnýjað 2022 og er hið glæsilegasta. Þar er stór flísalögð sturta með tveimur sturtum, falleg hvít sérsmíðuð innrétting frá Fríform undir og við handlaug, upphengt salerni, handklæðaofn og þar sem það er útgengt á veröndina / garðinn er gott aðgengi að heita og kalda pottinum ásamt því að nýta sér gufu / sauna og útisturtuna. Steinn frá Rein.

Baðherbergi II er við forstofuna og hefur að mestu verið endurnýjað febrúar 2026. Flísar eru á gólfi og veggjum, sturta, innrétting undir handlaug og handklæðaofn.

Þvottahús : Er mjög rúmgott með góðri innréttingu á tveimur veggjum, vaski öðru megin, þvottasnúrum sem hægt er að draga upp, mikilli lofthæð, flísum á gólfi og útgengi í garð austan megin.

Gólfefni : Gólfefni hússins er gegnheilt niðurlímt parket sem hægt er að pússa, en flísar eru á votrýmum.

Bílskúr

Aukaíbúð í útleigu: Um er að ræða stúdíóíbúð með sérinngangi á austurhlið hússins. Íbúðin er um 20 fm og hefur verið útbúin úr hluta bílskúrs. Þar er stofa, lítið eldhús, baðherbergi og svefnloft. Harðparket er á gólfi nema á baðherbergi þar sem flísar eru á gólfi.

Garður / Lóð og útisvæði: Einstaklega glæsileg og nýleg verönd með öllum helstu þægindum. Hönnunin er afar metnaðarfull og vel útfærð með heitum potti, köldum potti, sauna, tveimur köldum geymslum ( þar sem rýmir geymslu fyrir t.a.m. kajak, útihúsgögn, grill og fl.) pergólu, markísu, útdraganlegum skjólveggjum og skjólveg…