Dúfnahólar 4

111 Reykjavík

Ásett verð: 82.900.000 kr.

Dúfnahólar 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
142,80000038147 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
1974
Fermetraverð
580.532 kr.

Lýsing

Helgafell fasteignasala kynnir til sölu fimm herbergja útsýnisíbúð með bílskúr á efstu hæð við Dúfnahóla 4 í Reykjavík.

Íbúð: 116,7fm.

Bílskúr: 26,1fm.

Sér geymsla í sameign - er um 7fm. og er ekki inní fermetratölu íbúðarinnar.

Nánari Lýsing:

Anddyri er með flísum á gólfi og fataskáp. Anddyrið er afmarkað með glerflísum.

Úr anddyri er komið í rúmgott hol með eikarparket á gólfi.

Eldhús með eldri snyrtilegri innréttingu, flísar á milli efri og neðri skápa, pláss fyrir uppþvottavél. Flísar á gólfi og góður borðkrókur með mögnuðu útsýni. Opið á milli eldhúss og stofu.

Stofan er rúmgóð með eikarparket á gólfi, útgengt út á nýlega yfirbyggðar svalir til vesturs með flísum á gólfi. Glæsilegt útsýni á svölunum.

Fjögur svefnherbergi með eikarparketi á gólfi, fataskápar í tveimur herbergjum.

Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. "Walk-in" sturta og upphengt salerni. Pláss fyrir þvottavél á baðherbergi.

Um 7fm. sér geymsla í sameign sem er ekki inní birtum fermetrum.

Bílskúr með nýlegri bílskúrshurð. Bílskúrinn er með steyptu gólfi.

Snyrtileg sameign, sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Í sameign er líka sameiginlegt þvottahús.

Skjólsæll sameiginlegur garður er bakvið húsið með leiktækjum fyrir börn.

Viðhald: Nýlega búið að endurnýja rafmagn í sameign.

Nýleg lyfta.

Búið að skipta um glugga og gler í sameign og í íbúð.

Nýlega viðgert þak.

Hitalagnir í stétt.

Endurbætur á lóð að ofanverðu.

Nýlegar rafdrifnar útihurðir í sameign.

Nýlegar svalalokanir.

Falleg útsýniseign sem bíður upp á mikla möguleika.

Erum með lykla á skrifstofu Helgafells - sýnum samdægurs.

Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við:

Helgafell fasteignasala - sími 566 0000

Rúnar Þór Árnason - lgf., email: runar@helgafellfasteignasala.is