Draupnisgata 7 eign 202

603 Akureyri

Ásett verð: 51.500.000 kr.

Draupnisgata 7 eign 202
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
147,8 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1982
Fermetraverð
348.444 kr.

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Draupnisgata 7, Vel staðsett 147,8 m² atvinnuhúsnæði - 127,5 m² grunnflötur og 20,3 m² milliloft.

Um er að ræða iðnaðarbil sem getur hentað undir margskonar rekstur

Bilið er staðsett á efri hæð í tveggja hæða húsi og með aðkomu að vestan.

Eignin er að stærstum hluta opinn salur með lökkuð gólfi og góðri lofthæð.

Sér gönguhurð og um 3ja metra há innkeyrsluhurð er á framhliðinni.

Milliloftið er skráð 20,3 m² en nýtanlegir fermetrar eru fleiri.

Milliloftið skiptist í kaffistofu, snyrtingu og geymslu. Harðparket er á gólfi í kaffistofunni og lítil innrétting. Snyrting er með dúk á gólfi.

Annað

- Fyrir framan innkeyrsluhurð er steypt plan með stóru niðurfalli.

- Mikið af raflögnum og lýsingu hefur verið endurnýjað.

- 3ja fasa tenglar.

- Blástursofn(2025) í salnum og ofn á kaffistofu hafa verið endurnýjaðir sem og lagnir að þeim.

- Þakkantar og þakrennur var yfirfarið og lagfært árið 2018

- Hitaþræðir eru í þakrennum

- Húsið var múviðgert og málað 2019

- Nýtt dren var lagt með langhlið vesturhliðar árið 2023.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.