Álfhólsvegur 73

200 Kópavogur

Ásett verð: 117.900.000 kr.

Álfhólsvegur 73
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
119,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
0
Byggingarár
2020
Fermetraverð
988.265 kr.

Lýsing

FJÁRFESTING FASTEIGNASALA ER MEÐ TIL SÖLU NÝLEGA 4RA HERB ÍBÚÐ Í FJÓRBÝLI MEÐ SÉRINNGANGI, VERÖND OG SVÖLUM VIÐ ÁLFHÓLSVEG 73 Í KÓPAVOGI.

Um er að ræða glæsilega 4ra herbergja íbúð í nýlegu fjórbýlishúsi, byggt árið 2020.

Íbúðin sjálf er 105 fm. að stærð og sérgeymsla er 14,3 fm. Samtals er eignin því skráð 119,3 fm.

Góð verönd með skjólgirðingum. Einnig eru góðar svalir.

Gólfhiti er í íbúðinni.

Uppl. hjá Óskari í síma 822-8750 (oskar@fjarfesting.is)

Nánari lýsing:

Komið er inn í forstofu með fataskáp og flísum á gólfi.

Gangur með parketi á gólfi.

Stofa með parketi á gólfi og útgengi út á góðar svalir.

Eldhús með glæsilegri innréttingu, parketi á gólfi og góðum eldhústækjum.

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, sturtu með glerþili og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.

Hjónaherbergi með parketi á gólfi, fataskáp og útgengi út á góða verönd með skjólgirðingum.

Barnaherbergi 1 með parketi á gólfi og fataskáp.

Barnaherbergi 2 með parketi á gólfi og fataskáp.

Sérgeymsla er í kjallara.

Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Kostnaður kaupanda vegna kaupa:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati. 1,6% fyrir lögaðila, en 0,4% við fyrstu kaup einstaklinga. 2. Þinglýsingar af hverju skjali er 3800 kr.

3. Lántökugjald skv. verðskrá fjármálastofnunar. 4. Umsýsluþóknun sjá kauptilboð.