Aðalstræti 50

450 Patreksfjörður

Ásett verð: 70.000.000 kr.

Aðalstræti 50
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
114,3 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
1925
Fermetraverð
612.423 kr.

Lýsing

Dásamlega fallega Stúkuhúsið á Patreksfirði er komið á sölu - Frábært tækifæri til að eignast fullbúin veitingastað / kaffihús sem hefur heldur betur stimplað sig inn hjá bæði heimamönnum og ferðamönnum.

Þetta fallega hús stendur fyrir neðan götu og skartar einstöku útsýni yfir fjörðinn.

Eigendur endurbyggðu húsið frá A til Ö að undanskyldum útveggjum árið 2012 -2013. Því má segja að húsið sé nánast nýtt. Húsið var endurbyggt eftir öllum reglugerðum varðandi eldvarnir á veitingahúsum.

* Efri hæðin er að hluta til undir súð og því er gólfflöturinn töluvert stærri en uppgefnir fm!

* Eigendur hafa byggt 15 fm hús við hlið Stúkuhússins sem er nýttur undir lager, þar eru m.a kælar og stór frystir.

* Gólfhiti er á aðal hæðinni.

* 3 salerni eru í húsinu.

* Sérvalin antik húsgögn voru keypt inn í allt húsið fyrir opnun.

* Rúmgóður sólpallur er fyrir neðan hús sem er venjulega þétt setin á sumrin enda útsýnið einstakt og óskert út á fjörðinn.

* Við endurbygginguna var hugað vel að loftræstingu í eldhúsinu og því var settur upp veglegur háfur fyrir ofan eldavél í eldhúsinu.

* Vandað var til verka við endursmýði á húsinu.

- Nokkrar fjárfestingaleiðir í boði, hafðu samband og við förum yfir málin!

Stúkuhúsið er með sæti fyrir 50 manns og hefur í gegnum árin fengið frábæra einkunn inn á Tripadvisor og fleiri miðlum.

KAFFIHÚS - MATSÖLUSTAÐUR - VEITINGASTAÐUR / VEITINGAHÚS - VEISLUSALUR - ÚTSÝNI & SAMKOMUSTAÐUR

** Ertu Kokkur og langar þig í eigin rekstur?

** Hér er á ferðinni einstakt tækifæri til að eignast stað þar sem að viðhald er í algjöru lágmarki, allar vatnslagnir, raflagnir og frárennslislagnir voru endurnýjaðar ásamt ytra byrgði hússins, gluggum, þaki, hurðum og sólpalli **

** Það fylgir allt með sem varðar reksturinn á húsinu, ss. Kaffivélin, kökukælirinn ásamt öllum tækjum í eldhúsi **

Hér er allt klárt til að koma á laggirnar vel reknu fyrirtæki, góð viðskiptavild og einstaklega vel staðsett hús hvað varðar útsýni og huggulegheit innandyra.

Allar nánari uppls gefur Steinunn í síma 839-1100 eða á steinunn@dixon.is