Norðurbakki 23

220 Hafnarfjörður

Ásett verð: 81.800.000 kr.

Norðurbakki 23
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
82 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2007
Fermetraverð
997.561 kr.

Lýsing

Norðurbakki 23

Um er að ræða bjarta og fallega 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í vönduðu lyftuhúsi. Íbúðin er einstaklega björt með skemmtilegri lofthæð, rúmgóðum suðaustursvölum og sérmerktu bílastæði í lokaðri bílgeymslu.

Nánari lýsing:

Forstofa með góðum fataskáp, gangur/hol og bjart alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Frá alrými er útgengt á rúmgóðar svalir.

Eldhúsið býður upp á gott skápa- og vinnupláss. Hjónaherbergi er með fataskápum og auk þess er tæplega 10 fm herbergi með fataskáp (mynd vantar af herbergi).

Baðherbergi er flísalagt með innréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu. Sérþvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.

Í sameign er sérmerkt geymsla ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Eigninni fylgir einnig sérmerkt bílastæði í lokaðri bílgeymslu.

Um er að ræða fallega eign á eftirsóknarverðum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og allt það sem miðbær Hafnarfjarðar hefur upp á að bjóða.

Nánari upplýsingar veitir:

Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

[link]

[link]

[link]