Akurbraut 14

260 Reykjanesbær

Ásett verð: 81.900.000 kr.

Akurbraut 14
Tegund
Raðhús
Stærð
133,700000762939 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
612.565 kr.

Lýsing

Bjarta og fallega eign með góðu skipulagi, þremur svefnherbergjum, sólstofu og innangengt í bílskúr. Húsið er vel skipulagt og sólstofan setur sérstaklega skemmtilegan svip á eignina með útgengi beint út í bakgarð.

*Stór pallur í suður.

*Innangengt í bílskúr gegnum þvottahús.

*Hiti í öllum gólfum hússins.

*Innkeyrsla er hellulögð, með hitalögn og stæði fyrir þrjá bíla.

*Skoða skipti á minni eign.

Forstofa er flísalögð með góðum fataskáp.

Þvottahús er inn af forstofu, flísalagt og vel útbúið með skolvaski í borði og hillum.

Hol er parketlagt og tengir rými heimilisins vel saman.

Stofa er björt og notaleg með parketi á gólfi.

Sólstofan er flísalögð og gefur eigninni aukið rými og skemmtilega tengingu við bakgarðinn.

Eldhús er rúmgott með flísum á gólfi og eikarinnréttingu. Flísar eru á milli skápa og eldhúsið er búið helluborði, ofni og viftu.

Baðherberg i er flísalagt í hólf og gólf og þar er eikarinnrétting, upphengt salerni og walk-in sturta.

Svefnherbergin eru þrjú, öll parketlögð. Í hjónaherbergi er góður fataskápur.

Bílskúr er með hita og rafmagni ásamt rafdrifnum hurðaopnara. Innangengt er í bílskúrinn úr þvottahúsi. Lagnir fyrir heitan pott eru til staðar úr bílskúr.

Eigninni hefur verið haldið vel við, parketlagt 2020.

Eignin hefur ýmsa góða kosti, meðal annars gólfhita í öllu húsinu, innkeyrsla er hellulögð og með hitalögn, stæði fyrir þrjá bíla.

Í heild er um að ræða bjarta, hlýlega og vel skipulagða eign þar sem góð rými, sólstofan, þrjú svefnherbergi og innangengur bílskúr gera heimilið bæði þægilegt og fjölskylduvænt.

Falleg eign í góðu hverfi, falleg útivistarsvæði og gönguleiðir. Í göngufæri við leik og grunnskóla, sundlaug, verslun og bakarí.

Eignin er í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæði.

Nánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is

Sara Wium Hermannsdóttir astmf. í S: 891-6193 eða sara@palssonfasteignasala.is

[link]

[link]

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.