Kiðjaberg lóð 59

805 Selfoss

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Kiðjaberg lóð 59
Tegund
Sumarhús
Stærð
120,200001525879 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2009
Fermetraverð
747.920 kr.

Lýsing

Jason Kristinn - jason@betristofan.is - fasteignasali sími 7751515 og Betri Stofan kynna: Til sölu glæsilegt og vandað 120,2 fm heilsárshús með gestahúsi í Kiðjabergi á lóð nr. 59 - 10 þús fermetra eignarlóð. Eignin skiptist í aðalhús og gestahús. Samtals 4 svefnherbergi. 2 baðherbergi, eldhús og stofu í opnu rými, geymslur/inntaksrými.

Stór pallur/verönd með heitum potti. Byggingarár 2008-2010. Það er hitaveita í húsinu.

Örstutt er á golfvöllinn hjá Golfklúbbi Kiðjabergs. Svæðið er í rúmlega klukkutíma akstursfjarlægð frá Reykjavík. Stutt á Gullfoss og Geysi.

Nánari lýsing aðalhús:

Komið inn í flísalagt anddyri .

Eldhús með vandaðri innréttingu og tækjum.

Stofa og borðstofa með góðri lofthæð, útgengi út á pall, fallegir gluggar.

Hiti er í gólfum sem eru með parketi og flísum.

Baðherbergi með sturtu, útgengi út á pall, flísar á gólfi.

3 svefnherbergi.

Sér geymsla og inntaksrými.

Nánari lýsing gestahúss:

Komið inn í flísalagt anddyri .

Eldhús með vandaðri innréttingu og tækjum.

Stofa og eldhús með góðri lofthæð, útgengi út á pall, fallegir gluggar.

Hiti er í gólfum sem eru með parketi og flísum.

Baðherbergi með sturtu.

Svefnherbergi .

Sér köld geymsla .

Heitur pottur er við húsið.

Grófur kostnaður vegna reksturs:

Rafmagn hefur verið um 8.000 kr/mán, kostnaður vegna hita um 14.000 kr. þriðja hvern mánuð og gjald í Félag lóðarhafa í Kiðjabergi er rúmlega 52 þús á ári.

Lóðin er 10.000 fm eignarlóð og frábær 18 holu golfvöllur á svæðinu.

Allar nánari upplýsingar gefa: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 - jason@betristofan.is löggiltur fasteignasali.