Brúarfljót 20D

270 Mosfellsbær

Ásett verð: 26.900.000 kr.

Brúarfljót 20D
Tegund
Atvinnuhúsnæði
Stærð
51,2 m²
Herbergi
0
Svefnherbergi
0
Baðherbergi
0
Byggingarár
2022
Fermetraverð
525.391 kr.

Lýsing

** Hafðu samband og bókaðu tíma fyrir skoðun - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 51,2 m2 geymsluhúsnæði við Brúarfljót 20D í Mosfellsbæ. Góð lofthæð. Tvær innkeyrsluhurðir og ein inngönguhurð. Svæðið er allt malbikað og afgirt með tveimur rafdrifnum hliðum. Hiti og rafmagn er sameiginlegt. Sameiginlegt salerni er á svæðinu. Eignin er laus strax við undirritun kaupsamnings. Engin vsk-kvöð er á bilunum.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.

Húsin eru byggð úr samlokueiningum úr steinull og stáli, steingráum að utan og hvítum að innan. Gólf eru steypt og slípuð. Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg í hverju bili og eru þau upphituð með hitaveituofnum. Lóð skilast fullfrágengin, malbikuð og upplýst. Svæðið verður afgirt og aðgangi stýrt í gegnum tvö rafdrifin hlið. Sameiginlegur salerniskjarni er á svæði. Nýting á sameiginlegum bílastæðum fylgja öllum bilum en bílastæði í séreign fylgja ákveðnum bilum, þá staðsett fyrir framan viðkomandi bil. Sameiginleg sorpílát auk rafhleðslustöðva fyrir bíla. Húsfélag hefur verið stofnað um eignina sem sér um allan sameiginlegan rekstur. Engin vsk-kvöð er á bilunum.

Greitt er í dag ca. 9.000 kr fyrir hvern mánuð í húsfélagsgjöld. Innifalið í almennum húsgjöldum er almennur rekstur, rafmagn (séreignar og sameignar), hiti, húseigendatrygging og ræsting sameignar.

Verð kr. 26.900.000,-