Ásabyggð 5

846 Flúðir

Ásett verð: 39.900.000 kr.

Ásabyggð 5
Tegund
Sumarhús
Stærð
93,9 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
2
Byggingarár
1987
Fermetraverð
424.920 kr.

Lýsing

Miklaborg kynnir: Ca. 94 fm. fallegt sumarhús á góðum og skjólsælum stað í sumarhúsahverfi við Flúðir. Húsið skiptist í eldra hús og viðbyggingu og eru i því þrjú svefnherbergi auk svefnlofts.

Bókið skoðun hjá Viðari Böðvarssyni viðskiptafræðingi og lögg. fast.: vidar@miklaborg.is , s.694-1401.

Nánari lýsing: Andyri með fatahengi og spónaparketi a gólfi.

Baðherbergi með sturtuklefa , gengt frá því út á lóð. Á baðherbergi er tengi fyrir þvottavél.

Svefnherbergi með spónaparketi.

Eldhús með eldavél með fjórum hellum og bakaraofni.

Stofa er opin að eldhúsi. Hún er rúmgóð og er með spónaparketi.

Frá andyri er gengið í risloft, sem getur nýst sem svefnloft og vinnuaðstaða , geymsla er undir súð.

Viðbygging: Í viðbyggingu eru tvö svefnherberg i og sjónvarps/vinnuhol.

Baðherbergi með "walk in" sturtuklefa, upphengdu salerni og gluffa.

Yfir viðbyggingunni er ris sem getur nýst sem geymsla svefnaðstaða o.fl.

Pallur er við húsið og heitur pottur á honum. Hitaveita er í bústaðnum. Gott bílastæði er við bústaðinn. Lóðin er leigulóð frá Hrunamannahreppi.

Reisulegur bústaður á rólegum stað á Flúðum. Stutt frá þjónustu og golfvelli.