Elliðabraut 4

110 Reykjavík

Ásett verð: 129.400.000 kr.

Elliðabraut 4
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
180,60000038147 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
2
Byggingarár
2021
Fermetraverð
716.501 kr.

Lýsing

Rúmgóð og björt 5 herbergja íbúð með stæði í bílageymslu og bílskúr í nýlegu lyftuhúsi við Elliðabraut 4 í Norðlingaholti. Aukin lofthæð er í eigninni. Tvennar svalir. Tvö baðherbergi. Fjögur rúmgóð svefnherbergi. Eldhús með búri.

Bílskúr í bílakjallara ásamt bílastæði með rafmagnshleðslustöð í stæðinu.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 180,6 fm. og þar af er bílskúr 25,6 fm. auk bílastæðis sem ekki er inn í fermetratölu eignarinnar.

Nánari lýsing eignar:

Komið er inn í húsið Elliðabraut 4 og frá stigagangi hússins er gengið út á utanáliggjandi svalagang sem er í miðjuhring hússins. Íbúðin er á enda svalagangsins og því engin önnur íbúð sem gengur upp að henni.

Forstofa rúmgóð með góðu skápaplássi sem ná upp í loft, glugga og parket á gólfi.

Gangur liggur að alrými íbúðarinnar með parketi á gólfi. Út frá ganginum er aðalbaðherbergið og þrjú af svefnherbergjunum íbúðarinnar.

Baðherbergi með innangengri sturtu, glugga, góðri innréttingu með borðplötu úr stein með innbyggðum vask, handklæðaofn og innrétting fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á veggjum í sturtuklefa og á gólfi.

Stofa/borðstofa eru saman í opnu rými með glugga á þrjá vegu sem gera rýmið einstaklega bjart og opið. Eldhúsið er samliggjandi borðstofunni í opnu rými frá stofunni. Parket á gólfi. Útgengt er út á svalir úr stofunni.

Eldhús með fallegri innréttingu með efri og neðri skápum, innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, ofn í vinnuhæð, ásamt eyju með helluborði sem skilur eldhúsið frá borðstofunni. Parket á gólfi.

Búr er á bak við eldhúsið með innbyggðum frystiskáp miklu skápaplássi ásamt vinnuvaski og hillum. Hægt er að tengja auka uppþvottavél í búrinu eða breyta því í þvottaherbergi ef aðilar kjósa það. Gengið er út á svalir sem snúa inn í lokaðan sameiginlegan hring hússins.

Hjónaherbergi með baðherbergi

Hjónaherbergið er rúmgott með góðu skápaplássi og parkt á gólfi. Inn af hjónaherberginu er sér baðherbergi. Baðherbergið er með góðri innréttingu undir vaskaborði sem er með steinborðplötu og vaski. Fyrir ofan vaskaborðið er tvöfaldur speglaskápur. Fallegar gráar flísar eru á gólfi og inni í sturturýminu. Salernið er upphengt með innbyggðum vatnskassa í vegg.

Barnaherbergin eru þrjú öll rúmgóð með góðum fataskápum sem ná upp í loft og parket á gólfi.

Geymsla íbúðar er í kjallara hússins skráð 5,2 fm.

Bílskúr er inn í bílageymslunni og bílastæði fyrir framan bílskúrinn með rafmagnsbílahleðslu.

Sameign er mjög snyrtileg og gott aðgengi er í húsinu.

Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.

Hverfið Norðlingaholt er staðsett í nágrenni við Elliðavatn. Stutt er í öll helstu útivistarsvæði Reykjavíkur, Heiðmörk, Elliðaárdal, Rauðavatn og Rauðhóla. Mikill fjöldi stíga bæði fyrir gangandi og hjólandi vegfarendur auk þess sem reiðstígar umlykja hverfið. Grunn- og leikskólar eru í göngufjarlægð frá Elliðabraut en hverfið er byggt utan um Norðlingaskóla

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfangið gudbjorg@trausti.is eða Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 8673040 eða á netfanginu kristjan@trausti.is