Langholtsvegur 146

104 Reykjavík

Ásett verð: 77.900.000 kr.

Langholtsvegur 146
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
97 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
1957
Fermetraverð
803.093 kr.

Lýsing

RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: Bjarta og vel skipulagða þriggja herbergja neðri sérhæð í tvíbýli að Langholtsvegi 146, 104 Reykjavík með sérinngangi. Rúmgóð íbúð, skráð 97 fm, með afgirtum sameiginlegum garði með palli í rólegum botnlanga.

Skoðaðu eignina í 3D hér.

Nánari lýsing eignar:

Gengið er beint inn um sérinngang inn í anddyri og þaðan inn í hol/gang þaðan sem gengið er inn í aðrar vistarverur íbúðar.

Eldhúsið er með fallegri hvít málaðri upprunalegri innréttingu. Góður gluggi og parket á gólfum.

Stofa og borðstofa er björt með gluggum í suður og austur. Parket á gólfum.

Hjónaherbergið er mjög rúmgott með parketi á gólfi og stórum innbyggðum skáp.

Barnaherbergið er með parketi á gólfum.

Baðherbergið er flísalagt með baðkari með sturtu og hvít nýleg innrétting.

Í sameign er jafnframt stórt herbergi sem nýtt er sem þvottahús, hjólageymsla og þar er hvor íbúð um sig með geymsluhillu.

Bílastæði fylgir eigninni.

Framkvæmdir:

Árið 2024 voru gluggar málaðir að utan.

Lagnir voru myndaðar árið 2019 og metnar í lagi.

Skipt hefur verið um ofna og rafmagnstafla endurnýjuð af fyrri eiganda.

Til stendur að skipta um glugga í stofu (tvennir gluggar) og gler í minna svefnherbergi á kostnað seljanda.

Stutt er í alla helstu þjónustu eins og leikskóla, grunnskóla, menntaskóla og ýmsar verslanir.

Bókið skoðun í síma 823-2641 eða á julian@remax.is - Júlían J. K. löggiltur fasteignasali

Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Remax fasteignasala sími 477-7777 . [link]

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.