Davíðshagi 8 íbúð 301

600 Akureyri

Ásett verð: 69.500.000 kr.

Davíðshagi 8 íbúð 301
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
91,2 m²
Herbergi
4
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Byggingarár
2019
Fermetraverð
762.061 kr.

Lýsing

Davíðshagi 8, íbúð 301 - Björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á efstu hæð með glæsilegu útsýni - Stærð 91,2 m²

Nánari upplýsingar veitir Sigurður H. Þrastarson, siggithrastar@kaupa.is, 888-6661 .

Til sölu er falleg, björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð á efstu hæð í austurenda fjölbýlishúss með lyftu á eftirsóttum stað í Hagahverfi. Íbúðin nýtur frábærrar staðsetningar með opnu útsýni, góðu aðgengi og stutt í alla helstu þjónustu.

Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús og stofu í opnu og björtu alrými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og sérgeymslu á jarðhæð.

Nánari lýsing:

Við inngang er snyrtileg forstofa með flísum á gólfi og fataskáp. Frá forstofu er komið inn á gang með parketi og góðu skápaplássi.

Eldhús og stofa mynda rúmgott og bjart alrými þar sem stórir gluggar hleypa inn mikilli náttúrulegri birtu. Eldhúsið er fallega innréttað með góðu skápa- og skúffuplássi, flísum á milli skápa og innbyggðri uppþvottavél. Frá stofu er gengið út á góðar suðursvalir þar sem njóta má glæsilegs útsýnis og sólríkra stunda.

Svefnherbergin eru þrjú talsins, öll með parketi á gólfum og fataskápum sem tryggja gott geymslupláss.

Baðherbergið er snyrtilegt og vel hannað með flísum á gólfi og við votrými. Þar er hvít innrétting með plássi fyrir bæði þvottavél og þurrkara, handklæðaskápur, upphengt salerni og rúmgóður sturtuklefi með glerveggjum.

Annað:

- Efsta hæð með fallegu útsýni

- Björt og vel skipulögð 4 herbergja íbúð

- Þrjú góð svefnherbergi

- Suðursvalir

- Gólfhiti í allri íbúðinni

- Lyfta í húsinu

- Mynddyrasími

- Sérgeymsla á jarðhæð

- Gott aðgengi í og úr hverfinu

- Leikskóli í byggingu í næsta nágrenni

Húsið er staðsett nyrst í Hagahverfinu á vinsælum og fjölskylduvænum stað. Um er að ræða sérlega aðlaðandi eign sem hentar jafnt fjölskyldum sem þeim sem leita að þægilegri og nútímalegri búsetu í björtu umhverfi.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.