Andrésbrunnur 17

113 Reykjavík

Ásett verð: 89.900.000 kr.

Andrésbrunnur 17
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
119,1 m²
Herbergi
5
Svefnherbergi
4
Baðherbergi
1
Byggingarár
2003
Fermetraverð
754.828 kr.

Lýsing

Vorum að fá í sölu einstaklega fallega 4ra-5 herbergja íbúð í lyftuhúsi ásamt stæði í lokaðri bílageymslu í Grafarholti. Íbúðin er skráð 4ra herbergja en rúmgóð geymsla innan íbúðar með glugga er hægt að nýta sem fjórða svefnherbergið.

Í búðin er skráð skv. HMS 119,1 fm, auk stæðis í bílageymslu sem er ekki inni í fermetratölu.

Eignin skiptist í: Forstofu, eldhús, stofu, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, rúmgóða geymslu innan íbúðar og stæði í lokaðri bílageymslu.

Nánari upplýsingar veita:

Halldór Freyr Sveinbjörnsson Lgf. í síma 693-2916 eða halldor@fastgardur.is

Nánari lýsing:

Forstofa er flísalögð með fataskáp.

Eldhús er rúmgott með fallegri viðarinnréttingu og flísum á gólfi.

Stofa er rúmgóð með parketi á gólfi og útgengt er á góðar svalir.

Hjónaherbergi er rúmgott með fataskáp og parketi á gólfi.

Tvö góð barnaherbergi eru með fataskáp og parketi á gólfi.

Baðherbergi er flísalagt með sturtubaðkari og fallegri innréttingu.

Þvottahús er rúmgott með ljósri innréttingu og flísum á gólfi.

Geymsla er innan íbúðar, rúmgóð með glugga og parketi á gólfi. Hægt er að nýta hana sem fjórða svefnherbergið eins og hún hefur verið nýtt hjá núverandi eigendum.

Parket er á gólfum nema flísar eru á forstofu, eldhúsi, baðherbergi og þvottahúsi.

Bílageymsla: Stæði er í lokaðri bílageymslu. Inn af stæðinu eru góðir geymsluskápar auk þess eru hillur í bílageymslu sem nýtast vel sem geymslurými..

Sameiginleg hjólageymsla er í sameign.

Grunnskóli, leikskóli og önnur þjónusta eru í næsta nágrenni. Falleg eign í góðu hverfi sem vert er að skoða.