Víðimelur 49

107 Reykjavík

Ásett verð: 64.900.000 kr.

Víðimelur 49
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
55,9 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Byggingarár
1938
Fermetraverð
1.161.002 kr.

Lýsing

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á frábærum stað í Vesturbænum þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla og leikskóla. Háskóli Íslands og miðbærinn í göngufæri. Fallegur suðurgarður og útgengt úr stofu niður nokkrar tröppur í gróinn garðinn.

Eignin skiptist í opið forrými, rúmgóða stofu og borðstofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi en henni fylgir sér geymsla og hlutdeild í sameign, sameiginlegu þvottahúsi, sameiginlegu rými sem er gamli kyndiklefinn. Geymsla í kjallara er ekki inni í skráðum fermetrum.

SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT en annars veiti ég allar frekari upplýsingar í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is

Nánari lýsing íbúð:

Forrými með fatahengi, parket á gólfi.

Stofa og borðstofa, björt og rúmgóð með parket á gólfi, útgengt niður nokkrar tröppur í gróinn bakgarðinn.

Eldhús með viðar innréttingu, mikið skápapláss og nýlegar flísar á gólfi.

Hjónaherbergi með innbyggðum fataskáp, parket á gólfi.

Baðherbergi með glugga, flísalagt með hvítri innréttingu, salerni og walk-in sturtu.

Geymsla á jarðhæð (ekki inni í skráðum fermetrum hjá FMR)

Þvottahús á jarðhæð, sameiginlegt.

Húsgjöld íbúðar eru 22.802 kr á mánuði en þá er allur almennur rekstur innifalinn, allur hitakostnaður, rafmagn í sameign, húseigendatrygging og framkvæmdasjóður.

Árið 2004 var skipt um dren og skolplagnir, skipt um þakrennur árið 2010 og veruleg viðhaldsvinna á þaki árið 2016, þó ekki heildarendurnýjun. Skipt um glugga í þvottaherbergi austurhlið kjallaraíbúðar árið 2019. Nýlega var svo viðgerð affallsrennum, húsið sprunguviðgert að hluta eða við svalir íbúðar 2020 - 2022 og skipt um flesta glugga íbúðar 2024.

Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði í síma 663 2300 eða gegnum thorey@fastlind.is

Á heimasíðunni minni [link] má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.

Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flugger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.