Fossvogsvegur 10
108 Reykjavík
Ásett verð: 335.000.000 kr.

- Tegund
- Íbúð í fjölbýli
- Stærð
- 233,5 m²
- Herbergi
- 4
- Svefnherbergi
- 3
- Baðherbergi
- 1
- Fermetraverð
- 1.434.690 kr.
Lýsing
Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu glæsilega 4ra herbergja penthouse sérhæð í nýju tengihúsi í Fossvoginum. Íbúð 0204 er með svölum og stórum þaksvölum í glæsilegri álklæddri nýbyggingu á frábærum stað við Fossvogsveg við Fossvogsdal. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi og tvö baðherbergi. Íbúðinni tilheyrir stæði merkt B-15 í lokaðri bílageymslu. Sér lyfta fylgir þessari íbúð sem gengur frá neðstu hæð beint upp í íbúðina. Einnig fylgir sér stigagangur og geymsla sem er á neðstu hæð við stigagang. Fossvogsvegur 8-36 er nýtt 3ja hæða tengihús sem er í Fossvoginum, nánar tiltekið fyrir neðan Borgarspítalann, á einstaklega veðursælum og fallegum stað.
Birt stærð íbúðar 0204 er 233,5 fermetrar. Áætlaður afhendingartími er í febrúar 2026.
Húsið er 3ja hæða. Fjórar sérhæðir eru á efstu hæðinni með stórum þaksvölum og sér lyftum. Ellefu tveggja hæða íbúðir (hálfgerð raðhús) eru á miðhæð og jarðhæð. Bílageymsla er einnig á jarðhæð en innangengt er í íbúðirnar frá bílageymslu (alla nema eina íbúð). Samtals eru fimmtán íbúðir í húsinu. Öllum íbúðum fylgja stæði í bílageymslu en einnig eru sameiginleg bílastæði á lóð.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.
Húsin eru einstaklega vönduð með Free@Home hússtjórnunarkerfi og vönduðum innréttingum, stórum svölum og verönd, ásamt stæði í bílakjallara.
Þau skilast með innréttingum, tækjum, flísalögðum votrýmum og frágangi utanhúss samkvæmt skilalýsingu.
- Innréttingar frá Brúnás, sýnilegar hliðar og hurðir innréttinga spónlagðar með hnotu og veggir íbúðanna sandsparslaðir, grunnaðir og málaðir og að innan úr ljósgráum spónaplötum.
- Borðplötur í eldhúsi verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni.
- Eldhústæki: Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti og innbyggður kæliskápur. Raftæki sem fylgja eldhúsi koma frá Bræðrunum Ormsson.
-Gólfhitakerfi fylgir frágengið og verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem eru hluti af Free@home hússtjórnunarkerfinu.
- Sjá nánar um skil í skilalýsingu seljanda.
Byggingaraðili er traustur verktaki til fjölda ára: Byggingarfélag Gylfa og Gunnars hf.
Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is.
1. Frágangur innanhúss íbúða.
1.1. Gólfefni. Íbúðin sjálf verður afhent án gólfefna, nema á baðherbergi og þvottahúsi verða flísar frá Parka.
1.2. Veggir. Útveggir íbúðarinnar eru sandsparslaðir. Léttir innveggir eru hlaðnir úr vikur- eða gjallplötum, grófpússaðir og sandsparslaðir eða hefðbundnir gipsplötuveggir sparslaðir. Veggir eru grunnaðir og málaðir með tveimur yfirferðum af akrýlmálningu, gljástig 5 eða sambærilegt.
1.3. Loft. Steypt loft eru slípuð, og slétt sandspörsluð þar sem við á. Loft eru grunnuð og máluð með tveimur yfirferðum af plastmálningu, gljástig 2 eða sambærilegt. Loft og veggir á baðherbergjum og þvottahúsum eru máluð með viðurkenndri votrýmismálningu. Á völdum stöðum er hluti lofta gips- og eða klædd hljóðdúk.
1.4. Gler. Tvöfalt hefðbundið K-gler, verksmiðjugler er í öllum gluggum. Ábyrgð framleiðanda er samkvæmt skilmálum BYKO glerframleiðanda. Við kaup íbúðar yfirtekur/yfirtaka kaupandi/kaupendur ábyrgð framleiðanda.
1.5. Hurðir. Inngangshurð úr bílgeymslu er stálhurð EI60-CS en millihurð yfirfelld hvít inn í íbúðina EICS-30 sem og geymsluhurðir. Anddyrishurð er timburhurð frá BYKO. Innihurðar eru spónlagðar með hnotu og gereftalausar frá Brúnás. Rennihurðir eru spónlagðar með hnotu þar sem við á frá Brúnás. Svalahurðir eru frá BYKO.
1.6. Fataskápar. Fataskápur er í forstofu og svefnherbergjum. Í sumum hjónaherbergjum eru fataherbergi ýmist með rennihurðum og/eða hefðbundnum skápahurðum. Innréttingar verða frá Brúnás og eru að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar þar sem við á úr Hnotu.
1.7. Eldhús. Eldhúsinnrétting verður frá Brúnás og að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar með Hnotu. Borðplötur verða úr Virgo Quartz steini frá S. Helgasyni. Vaskur og blöndunartæki verða í innréttingu frá Tengi. Vaskur verður undirlímdur í borðplötu. Einnig mun fylgja helluborð með viftu, ofn með blæstri, örbylgjuofn, innbyggð uppþvottavél með áklæddum fronti. Ísskápur og frystir innbyggðir í innréttingu og vínkælir. Raftæki sem fylgja koma frá Bræðrunum Ormsson.
1.8. Baðherbergi. Á baðherbergi er gólf flísalagt og verða veggir flísalagðir upp í loft. Innrétting frá Brúnás verður að innan úr ljósgráum spónaplötum, en sýnilegar hliðar og hurðir verða spónlagðar með Hnotu. Rennihurðir úr fataherbergi inn á bað verða úr gleri. Borðplötur eru úr Virgo Quartz steini. Á baðherbergi verða ýmist speglaskápar eða speglar eftir því sem við á. Handlaug ásamt hitastýrðu blöndunartæki verður í innréttingu frá Tengi. Handklæðaofn þar sem við á, upphengt og innbyggt salerni með hæglokandi setu ásamt flísalögðum sturtubotni með sturtuhlið eða sturtuklefa úr gleri eftir því sem við á. Innbyggð blöndunartæki verður í sturtu frá Tengi.
1.9. Þvottahús. Í þvottahúsi er gólf flísalagt og innréttingar frá Brúnás úr ljósgráum spónaplötum með ræstivask og blöndunartæki í borði. Borðplata er úr plasti. Niðurfall er í gólfi og tengingar fyrir þvottavél og þurrkara, gert er ráð fyrir barkalausum þurrkara. Veggir eru grunnaðir og málaðir með viðurkenndri votrýmis málningu.
1.10. Sérgeymsla. Steypt loft og veggir í sérgeymslum eru spörsluð og máluð gólf eru flísalögð. Rafmagnstengill er í sérgeymslu.
1.11. Hitakerfi. Íbúðirnar eru upphitaðar með gólfhita skv. teikningum. Góðlfhitakerfinu verður stjórnað af hitanemum í rofadósum sem er hluti af Free@home hússtjórnarkerfinu. Ofnakerfi og hitablásarar eru í sameign þar sem við á og verða með hitastýrðum lokum.
1.12. Loftræsi-, vatns- og þrifalagnir. Loftræ…