Ásakór 7

203 Kópavogur

Ásett verð: 73.500.000 kr.

Ásakór 7
Tegund
Íbúð í fjölbýli
Stærð
89,4 m²
Herbergi
3
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Byggingarár
2006
Fermetraverð
822.148 kr.

Lýsing

Valhöll og Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali kynna góða 3ja herbergja íbúð með stæði í bílageymslu til sölu í Ásakór 7, 203 Kópavogi, íbúð 05-05.

**** Getur verið laus við kaupsamning ****

Eignin er skráð 89,4 fm. skv. Fasteignskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 80,1 fm. og geymsla í sameign 9,3 fm. Auk þess fylgir eigninni stæði í bílageymslu.

Um er að ræða bjarta og vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi með sérinngangi af svölum. Hún skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og rúmgott alrými með stofu/borðstofu.

NÁNARI LÝSING:

Forstofa er flísalögð með rúmgóðum fataskáp sem nær upp í loft. Þvottahús er inn af forstofu, flísalagt með tengi fyrir þvottavél og þurrkar og opnanlegum glugga.

Komið er inn í opið og bjart alrými með suður gluggum og hurð út á svalir.

Eldhús er með viðarinnréttingu, granítplötum á bekkjum, tengt er fyrir uppþvottavél, bakarofn í vinnuhæð og ágæt vinnuðastaða og skúffupláss.

Stofan er opin og rúmar vel borðstofu og setustofu, gengið er frá stofu út á rúmgóðar suðursvalir (13,2 fm) sem snúa upp í óbyggt holt með útsýni til fjalla í s-austri.

Herbergin eru tvö;

Hjónaherbergi er rúmgott með góðum skápum upp í loft.

Barnaherbergi með fataskáp sem nær upp í loft.

Baðherbergi er með innréttingu, upphengt salerni og handklæðaofni, rúmgóður "walk-in" sturtuklefi er nýlegur.

Gólfefni; Flísar á forstofu, þvottahúsi og baðherbergi, viðarparket á öðrum rýmum.

Þetta er einstaklega snyrtileg og vel umgengin eign.

Í sameign á jarðhæð er sérgeymsla þessarar íbúðar, 9,3 fm. auk þess er sameiginleg vagna- og hjólageymsla.

Stæði í lokaðri bílageymslu fylgir eigninni merkt 01-Y2, búið er að setja upp dreifikerfi fyrir rafhleðslu í bílageymslu, en ekki er stöð sem fylgir þessari eign.

Góð aðkoma er að húsinu - þar eru hleðslustöðvar og almennt næg bílastæði

Þetta er falleg eign í góðu lyftuhúsi á vinsælum stað í Kópavogi, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, leik(Austurkór)- og grunnskóla (Hörðuvallaskóli).

Nánari upplýsingar veitir Þóra Birgisdóttir, Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða thora@valholl.is